Fótbolti

Ísland upp fyrir Finnland

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Sigurður Ragnar Eyjólfsson landsliðsþjálfari.
Sigurður Ragnar Eyjólfsson landsliðsþjálfari. Mynd/Valli

Ísland færðist upp um eitt sæti í það átjánda á styrkleikalista Alþjóða knattspyrnusambandsins en nýr listi var gefinn út í dag.

Finnland situr nú í nítjánda sæti listans en Ísland verður á meðal þátttökuþjóða í úrslitakeppni EM sem fer fram í Finnlandi í sumar.

Ísland hefur spilað fjóra landsleiki síðan að síðasti listi var gefinn út - alla á Algarve Cup í Portúgal. Ísland fékk tíu stig fyrir 3-1 sigurinn á Noregi en tapaði samtals sex fyrir tapleikina gegn Kína og Danmörku.

Ísland tapaði einnig fyrir Bandaríkjunum en sá leikur hafði engin áhrif á stigastöðu liðsins. Bandaríkin er í efsta sæti listans eins og undanfarið en Brasilía færðist upp í annað sæti listans á kostnað Þýskalands.

Þjóðverjar eru ekki í öðru af tveimur efstu sætunum í fyrsta sinn í sex ár.

Norðmenn féllu um þrjú sæti á milli lista og eru nú í níunda sæti.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×