Hárblásari Ferguson gerir svarta menn að hvítum Henry Birgir Gunnarsson skrifar 1. mars 2009 11:45 Rio segir Ferguson afar harðan í horn að taka. Nordic Photos/Getty Images
Enski landsliðsmaðurinn Rio Ferdinand er í skemmtilegu viðtali við tímaritið GQ. Þar talar hann meðal annars um að hann vilji sjá Jose Mourinho taka við af Sir Alex Ferguson sem hann segir reyndar eiga nóg eftir. „Eru menn enn að fá hárblásarann hjá Ferguson? Já, heldur betur. Ég hef séð hvíta menn verða bleika þegar Ferguson er að öskra á þá og svarta menn verða hvíta. Eldri leikmenn segja mér reyndar að þetta hafi verið verra hérna í gamla daga," sagði Rio um hina goðsagnakenndu hárblásarameðferð Fergusons sem hann beitir óspart í klefanum. Rio hefur sjálfur lent í hárblásaranum hjá Skotanum harða. „Ég fékk hárblásarann á hæsta styrk eftir leik gegn Benfica í Meistaradeildinni. Ég man að hafa hugsað um hversu mikið ég vildi að hann færi að öskra á einhvern annan. Ég var að springa af reiði að innan því mér fannst hann vera ósanngjarn og var ekki sammála honum. Ég horfði svo aftur á leikinn og komst að því að hann hafði rétt fyrir sér. Hann á alltaf síðasta orðið. Það er langbest að svara honum ekki því annars verður hann bara háværari," sagði Rio en hann segir Ferguson verða sérstaklega reiðan ef leikmenn haga sér ekki skikkanlega út á lífinu. „Ef við höfum ekki hagað okkur út á lífinu fara flugeldarnir í gang. Þá verður kallinn alveg brjálaður og hausarnir enda bara á gólfinu." Rio segir fáa menn geta tekið við af Ferguson en einn af þeim sem geti það sé Jose Mourinho. „Fólk spyr mig oft hvernig hann sé. Það er erfitt að lýsa því en hann er sigurvegari alla leið. Það þarf mann með sterkan karakter og stórt egó til að fylla hans skarð og því kemur nafn Mourinho fljótt upp í hugann."
Mest lesið Sænskur varnarjaxl ólétt og segir að ferlinum sé lokið Fótbolti Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Íslenski boltinn Braut nálgunarbann með því að heimsækja kærustu sína Sport Segir að það sé bara einn heimsklassaleikmaður í enska landsliðinu Fótbolti Ung frjálsíþróttakona lést í fríi með fjölskyldunni Sport Breiðablik og Víkingur mætast í undanúrslitum Íslenski boltinn Aron Elís: „ Ég ætla ekki að fara jinxa neitt“ Íslenski boltinn Uppgjör: ÍA – Víkingur R. 1-2 | Ævintýrasumar Óskars og Víkinga heldur áfram Íslenski boltinn Brasilísk fótboltagoðsögn lést rétt fyrir HM Fótbolti Lærissveinar Heimis missa heimaleik á hlutlausan völl Fótbolti Fleiri fréttir Sonur Djibril Cissé samdi við Liverpool Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Everton gert að greiða Burnley næstum því sex milljarða króna Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Keane og Fernandes grafa stríðsöxina Rio Ngumoha á heimleið þrátt fyrir flotta frammistöðu Fyrrum Liverpool-stjarna hættur aðeins 31 árs gamall Ein meidd Arsenal-stjarna nær HM en önnur missir af HM Eigandi West Ham sakaður um að notfæra sér ungar konur kynferðislega „Ég verð að spila“ Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Slot hefur engan áhuga á starfinu hjá Fulham Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Þrír Arsenal-leikmenn tilnefndir sem leikmaður ársins „Verður svolítið hissa á því hversu mikil áhrif þetta mun hafa á líf hans“ Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Chelsea-goðsögnin Bobby Tambling látinn Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Sjá meira