Stjórnvöld fordæma árásina 13. janúar 2009 04:30 Strax og árás Ísraelsmanna hófst á Gasasvæðið lýsti utanríkisráðherra Íslands því yfir fyrir hönd íslenskra stjórnvalda að hún væri óverjandi. Engin önnur stjórnvöld í Evrópu tóku svo sterkt til orða strax í upphafi, en þeim ríkjum fer sem betur fer fjölgandi sem beita röddu sinni á alþjóðavettvangi á sama hátt. Ríkisstjórn Íslands er ekki fjölskipað stjórnvald og hver ráðherra hefur forræði á sínum málaflokki. Þegar utanríkisráðherra talar um utanríkismál tala íslensk stjórnvöld og ríkisstjórn Íslands. Ísland fordæmdi harðlega innrás landhers Ísraela þegar hún hófst á Gasa og harmaði aðgerðaleysi öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Áður en innrás landhersins hófst sendi utanríkisráðherra Tzipi Livni, utanríkisráðherra Ísraels, bréf, þar sem hún fordæmdi hernaðaraðgerðirnar sem aldrei gætu leitt til viðvarandi friðar og öryggis. Var Ísrael hvatt til að fallast á vopnahléstillögu Evrópusambandsins sem þá lá fyrir. Ísland fordæmi hernaðinn á opnum fundi öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna í New York og í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna í Genf fyrir helgina og sagði alþjóðasamfélagið verða að grípa inn í. Afstaða Íslands gæti ekki verið skýrari og afdráttarlausari á alþjóðavettvangi. Það sýnir t.d. frétt Jerusalem Post með fyrirsögninni Ísland fordæmir innrás á Gasa sem Fréttablaðið hefur sagt frá hér heima. Sumir íslenskir fjölmiðlar reyna af fremsta megni að sýna fram á að meintur ágreiningur í ríkisstjórn geri þessa afstöðu Íslands á einhvern hátt ómerkilegri en hún gæti verið. Samt hefur Geir H. Haarde forsætisráðherra í viðtölum við íslenska fjölmiðla tekið undir afstöðu utanríkisráðherra, ítrekað staðfest að um málið sé enginn ágreiningur innan ríkisstjórnar og yfirlýsingar Íslands nú á alþjóðavettvangi hafi nákvæmlega sama slagkraft röddu Íslands og allar yfirlýsingar sem áður hafi verið gefnar, ef ekki meiri. Ég hvet fólk til að kynna sér þær fjölþættu aðgerðir sem þessi ríkisstjórn hefur staðið fyrir síðustu átján mánuði í málinu og eiga sér ekki fordæmi í utanríkisstefnu Íslands. Höfundur er aðstoðarmaður utanríkisráðherra. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Maðurinn sem treysti þjóðinni, en ekki lengur Halldór Jörgen Olesen Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson Skoðun UT-mál Reykjavíkurborgar Haukur Arnþórsson Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið Skoðun Hræðslubandalag elítunnar í fílabeinsturninum Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Prófessorinn, hagfræðingurinn og fullveldið Gunnar Ármannsson Skoðun Ferðaþjónustan er ekki endalaus tekjulind fyrir ríkissjóð Björn Ragnarsson Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir Skoðun Þegar allt verður forgangsmál Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Er Ísland tilbúið fyrir dánaraðstoð? Ingrid Kuhlman Skoðun Skoðun Skoðun Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir skrifar Skoðun Hvað vitum við í ágúst? Staðreyndir og möguleikar Íslands Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið skrifar Skoðun UT-mál Reykjavíkurborgar Haukur Arnþórsson skrifar Skoðun Er Ísland tilbúið fyrir dánaraðstoð? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þolendur sem vitni í eigin málum Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Maðurinn sem treysti þjóðinni, en ekki lengur Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Mælanlegt sjálfstæði þjóðar Sigurður Friðleifsson skrifar Skoðun Af hverju er netöryggisfræðsla grunninnviður? Margrét Valgerður Helgadóttir skrifar Skoðun Ferðaþjónustan er ekki endalaus tekjulind fyrir ríkissjóð Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Hlustum á börn – líka þegar þau eru ósammála okkur Tótla I. Sæmundsdóttir skrifar Skoðun Stærsta hópverkefni Íslands Einar Örn Einarsson skrifar Skoðun Úr gráu yfir í grænt með hjálp 50.000 trjáa Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er Ísland að undirbúa nemendur fyrir framtíðina? Íris Þóra Birgisdóttir skrifar Skoðun Laugavegur 1: Húsvernd á villigötum Þórður Magnússon skrifar Skoðun Hræðslubandalag elítunnar í fílabeinsturninum Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi Fjarðarheiðarganga Steinar Björgvinsson skrifar Skoðun Prófessorinn, hagfræðingurinn og fullveldið Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Varnarsamningurinn og fullveldið Jóhannes Hraunfjörð Karlsson skrifar Skoðun Já, áfram Ísland! Óli Rúnar Ástþórsson skrifar Skoðun Þegar allt verður forgangsmál Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Sjálfstætt Grænland hefði bæði víðtækari rétt og meiri möguleika en Ísland innan ESB Júlíus Valsson skrifar Skoðun Takk, en NEI takk Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Reyndi að hindra að Ísland nyti réttlætis Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Upptaka evru áhættusöm fyrir lítil hagkerfi Kristinn Sv. Helgason skrifar Skoðun Reikningsdæmi handa Ögmundi Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Eilífðar smáblóm... Móheiður Hlíf Geirlaugsdóttir skrifar Skoðun „Eigðu sjálfur þinn helvítis tjakk!“ Ólafur Hauksson skrifar Sjá meira
Strax og árás Ísraelsmanna hófst á Gasasvæðið lýsti utanríkisráðherra Íslands því yfir fyrir hönd íslenskra stjórnvalda að hún væri óverjandi. Engin önnur stjórnvöld í Evrópu tóku svo sterkt til orða strax í upphafi, en þeim ríkjum fer sem betur fer fjölgandi sem beita röddu sinni á alþjóðavettvangi á sama hátt. Ríkisstjórn Íslands er ekki fjölskipað stjórnvald og hver ráðherra hefur forræði á sínum málaflokki. Þegar utanríkisráðherra talar um utanríkismál tala íslensk stjórnvöld og ríkisstjórn Íslands. Ísland fordæmdi harðlega innrás landhers Ísraela þegar hún hófst á Gasa og harmaði aðgerðaleysi öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Áður en innrás landhersins hófst sendi utanríkisráðherra Tzipi Livni, utanríkisráðherra Ísraels, bréf, þar sem hún fordæmdi hernaðaraðgerðirnar sem aldrei gætu leitt til viðvarandi friðar og öryggis. Var Ísrael hvatt til að fallast á vopnahléstillögu Evrópusambandsins sem þá lá fyrir. Ísland fordæmi hernaðinn á opnum fundi öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna í New York og í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna í Genf fyrir helgina og sagði alþjóðasamfélagið verða að grípa inn í. Afstaða Íslands gæti ekki verið skýrari og afdráttarlausari á alþjóðavettvangi. Það sýnir t.d. frétt Jerusalem Post með fyrirsögninni Ísland fordæmir innrás á Gasa sem Fréttablaðið hefur sagt frá hér heima. Sumir íslenskir fjölmiðlar reyna af fremsta megni að sýna fram á að meintur ágreiningur í ríkisstjórn geri þessa afstöðu Íslands á einhvern hátt ómerkilegri en hún gæti verið. Samt hefur Geir H. Haarde forsætisráðherra í viðtölum við íslenska fjölmiðla tekið undir afstöðu utanríkisráðherra, ítrekað staðfest að um málið sé enginn ágreiningur innan ríkisstjórnar og yfirlýsingar Íslands nú á alþjóðavettvangi hafi nákvæmlega sama slagkraft röddu Íslands og allar yfirlýsingar sem áður hafi verið gefnar, ef ekki meiri. Ég hvet fólk til að kynna sér þær fjölþættu aðgerðir sem þessi ríkisstjórn hefur staðið fyrir síðustu átján mánuði í málinu og eiga sér ekki fordæmi í utanríkisstefnu Íslands. Höfundur er aðstoðarmaður utanríkisráðherra.
Skoðun Sjálfstætt Grænland hefði bæði víðtækari rétt og meiri möguleika en Ísland innan ESB Júlíus Valsson skrifar