Skoðun

Helgi Hóseasson og staðfestar ógildingar

Óli Gneisti Sóleyjarson skrifar
Baráttumál Helga Hóseassonar hafa oft verið illa misskilin. Fáir hafa í raun reynt að skilja hvers vegna hann vildi ógilda skírnarsáttmála sinn. Flestum þykir skírnin innihaldslaus gjörningur og velta til því dæmis ekkert fyrir sér að þeir sem framkvæma hana telja, allavega samkvæmt kenningum ríkiskirkjunnar, að saklausa litla barnið sé syndugt. Jón Valur Jensson Moggabloggari náði nýlega að innsigla réttmæti málflutnings Helga Hóseassonar. JVJ sagði: „En hversu mjög sem einhverjum kynni að vera í nöp við t.d. fyrrverandi maka, þá er ekki leyfilegt að þurrka út færslu um hjónavígslu þeirra í embættisbókum, þó að viðkomandi hafi fengið lögskilnað. Það sama gildir um skráningu kirkjubókar á skírn."

Það sem Jóni Vali yfirsést er að fólk sem á fyrrverandi maka hefur væntanlega fengið skilnað sinn skráðan á opinbera pappíra til að staðfesta að fyrri skráning eigi ekki lengur við. Helgi Hóseasson vildi einmitt álíka viðurkenningu en fékk aldrei. Af öllu er ljóst að það voru kirkjuyfirvöld sem stöðvuðu það.

Ólíkt fólki sem hefur gengið í hjónaband þá var Helgi ekki í þeirri stöðu að geta tekið upplýsta afstöðu til skírnarsáttmálans þegar hann var gerður og þegar hann var staðfestur. Fólk sem er skráð í hjónaband án þess að hafa fengið að taka til þess upplýsta afstöðu fær ógildingu. Það sama hefði átt að gilda um skírnarsáttmála Helga.

Frá sjónarhóli Nýja testamentis­ins er ljóst að ólík afstaða ríkiskirkjunnar til skírnarsáttmálans annars vegar og hjónabandssáttmálans hins vegar er ákaflega vafasöm. Jesús hafnaði skilnaði alfarið en ríkiskirkjan þykist vita betur en hann. Jesú datt ekki í hug að skíra ungabörn sem ekki gátu tekið upplýsta afstöðu til boðskaps hans en ríkiskirkjan þykist líka vita betur þar. Ef ríkiskirkjan þykist geta ógilt hjónabandssáttmála þá ætti það að vera hægur vandi að ógilda skírnarsáttmála.

Helga tókst ekki að fá helsta baráttumál sitt í gegn en honum tókst að afhjúpa prestana og biskupana sem monta sig af „góðverkum" sem þeir vinna á launum hjá almenningi. Kirkjan gat ekki einu sinni leyft Helga að fá lausn sinna mála þegar hann var orðinn gamall maður. Það hefði ekki kostað neitt. Þetta fólk hafði ótal tækifæri en situr núna eftir með skömmina. Tvískinnungurinn er afhjúpaður.

Höfundur er þjóðfræðingur.




Skoðun

Sjá meira


×