Ofurlaun Beckham eru ekki há á bandaríska vísu 11. mars 2009 18:30 David Beckham þénar vel í Bandaríkjunum NordicPhotos/GettyImages
David Beckham verður með meira en helmingi hærri laun en næstlaunahæsti leikmaðurinn í MLS deildinni á leiktíðinni þrátt fyrir að missa af meira en helmingi keppnistímabilsins. Beckham ætlar að halda áfram spila innan um stjörnuvini sína hjá AC Milan fram á sumar til að ganga í augun á Fabio Capello landsliðsþjálfara Englendinga, en verður samt með miklu hærri laun en allir aðrir leikmenn í amerísku deildinni. Beckham fær 722 milljónir króna í árslaun hjá Galaxy, sem er meira en helmingi hærri upphæð en árslaun Blanco hjá Chicago Fire sem er númer tvö á listanum. Svíinn Freddie Ljungberg hjá Seattle Sounders er fjórði launahæstur með 145 milljónir króna í árslaun. Árslaun Beckham eru 43 sinnum hærri en meðallaun í MLS deildinni (16,4 milljónir króna). Lágmarkslaun í MLS eru 3,7 milljónir króna eða 195 sinnum lægri en laun Beckham fær. Ef einhverjum finnst launatölur Beckham vera háar, eru þær bara klink í samanburði við tekjuhæstu menn í þremur stærstu atvinnudeildum Bandaríkjanna. Ben Roethlisberger, leikstjórnandi Pittsburgh Steelers sem unnu Ofurskálina í febrúar, er með rúma þrjá milljarða króna í árslaun í NFL deildinni. Hafnaboltamaðurinn Alex Rodriguez hjá New York Yankees í MLB er líka með þrjá milljarða króna í árslaun og Kevin Garnett hjá NBA meisturum Boston Celtics í körfubolta rakar inn 2,75 milljarða í árslaun. Hér er reyndar aðeins verið að tala um föst laun sem þessir menn fá frá félögum sínum fyrir að spila, en þarna eru ótaldir auglýsinga- og styrktarsamningar og þar er Beckham fyllilega á pari við þremenningana.
Fótbolti Mest lesið Ólafur fékk rautt spjald eftir sjö sekúndur í endurkomunni Handbolti Ótrúlega ósáttur við Val: „Hafa skilið mann eftir einan í myrkrinu“ Handbolti Liverpool má ekki taka á móti Real Madrid í Meistaradeildinni Fótbolti Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Enski boltinn Dregið í Meistaradeild: Hákon mætir Arsenal og Bayern Fótbolti Dönsk landsliðsstjarna dæmd Fótbolti „Þeir eru að fara í Evrópuleik bara til að halda klúbbnum á floti“ Fótbolti Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka Körfubolti Uppgjörið: Borac - Víkingur 3-1 | Evrópuþátttöku Víkinga lokið Fótbolti Golfáhrifavaldar í klandri vegna umdeildrar auglýsingar Golf Fleiri fréttir Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Elías og félagar flugu áfram Uppgjörið: Borac - Víkingur 3-1 | Evrópuþátttöku Víkinga lokið Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Kristall skoraði þegar Brann komst áfram Róbert Frosti og Daníel Tristan á skotskónum Rodri kom inn af bekknum í sigurleik Fyrstir til að fara alla leið án þess að vinna leik Dregið í Meistaradeild: Hákon mætir Arsenal og Bayern Goretzka mættur til Villa UEFA undirbýr kæru á hendur Infantino Freyr valinn bestur: „Í byrjun mánaðarins var ég ekki með vinnu“ Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Zirkzee til Fiorentina: Samkeppnin eykst enn frekar hjá Alberti Felur samkynhneigðina og fer til félags í Sádi-Arabíu Snýr aftur til uppeldisfélagsins frítt „Þeir eru að fara í Evrópuleik bara til að halda klúbbnum á floti“ Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Minnst 447 milljónir í boði fyrir Víkinga í kvöld Sjáðu Breiðablik fara á kostum og valta yfir andstæðing sinn í Evrópu Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Víkingar með bakið upp við vegg Nicolas Jackson á leið til Aston Villa „Við lögðum leikinn nákvæmlega svona upp“ Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum „Við vorum allar alveg með þetta í dag“ Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Sjá meira