Umfjöllun: Frábær varnarleikur og naumt tap á móti heimsmeisturunum Óskar Ófeigur Jónsson í Tampere skrifar 30. ágúst 2009 17:58 Edda Garðarsdóttir sést hér í baráttunni við Birgit Prinz í leiknum í dag. Mynd/Ossi Ahola
Íslenska kvennalandsliðið tapaði 0-1 fyrir Heims- og Evrópumeisturum Þjóðverja í lokaleik leik sínum á Evrópumótinu í Finnlandi í dag. Íslensku stelpurnar spiluðu frábæran varnarleik á móti hinu ósigrandi stórveldi kvennaboltans. Þýska liðið uppskar að lokum aðeins eitt heppnismark á móti baráttuglöðu og einbeittu liði stelpnanna okkar sem voru hvattar áfram af frábærum stuðningsmönnum og fengu tvö flott tækifæri til að jafna leikinn á lokakaflanum. Það var litla liðið Ísland sem stal sviðsljósinu af þeim þýsku þrátt fyrir að fyrsta stig Íslands á stórmóti rynni liðinu úr greipum. Þýska liðið var örugglega eitthvað með hugann við næsta leik liðsins í átta liða úrslitunum og að sleppa við spjöld og meiðsli en engu að síður máttu þær hafa sig allan við að brjóta niður íslenska varnarmúrinn. Líkt og í hinum leikjum tveimur gerðust íslensku stelpurnar ágengar strax á upphafsmínútunni en nú átti Katrín Ómarsdóttir ágætt skot rétt framhjá markinu. Þýska liðið tók strax frumkvæðið í leiknum en komst ekki mikið gegn íslenska liðinu enda gekk okkar stelpum vel að berjast sóknarlotunum. Þær þýsku þurftu að hafa fyrir öllum hlutum á móti ellefu einbeittum íslenskum leikmönnum. Íslensku stelpurnar lágu reyndar aftar á vellinum en í fyrri leikjum sínum en gekk engu að síður ágætlega að byggja upp nokkrar sóknir til að létta af pressunni ekki síst fyrir framlag Katrínar Ómarsdóttur sem gerði vel í að komast í boltann og dreifa spilinu. Það var hinsvegar samheldnin og baráttan sem dreif íslenska liðið áfram og það var frábært að sjá stelpurnar gefa allt fyrir hvern einasta bolta. Þökk sé þessum frábæra varnarleik hélt liðið hreinu í fyrri hálfleik í fyrsta sinn á EM. Eftir frábæran fyrri hálfleik byrjaði sá seinni ekki vel. Inka Frings hafði komið inn af bekknum fyrir Birgit Prinz í hálfleik og hún var nýbúin að skjóta í stöngina þegar hún varð á undan Guðbjörgu Gunnarsdóttur markverði í boltann og ýtti honum inn fyrir marklínuna. Það tók Þjóðverja því aðeins sex mínútur að skora í seinni hálfleik. Um leið og Þjóðverjar komust yfir dugði ekki að verjast lengur en sóknarleikurinn hafði verið bitlítill og ekki líklegur til að skapa eitthvað í opnum leik. Stelpurnar fóru þá að ógna meira fram á við og tvær skiptingar á 71. mínútu voru fljótar að hafa áhrif. Margrét Lára fékk frábært færi á 72. mínútu eftir laglega stungusendingu frá Rakel Hönnudóttur sem var þá nýkomin inn á. Margrét Lára var búin að bíða eftir þessari sendingu allt mótið en náði ekki að hitta boltann nægilega vel og skaut framhjá. Sex mínútum síðar björguðu síðan þjóðverjar á línu eftir þrumuskalla Katrínar Jónsdóttur eftir horn og það hefði verið til að kóróna frábæran dag fyrirliðans hefði hún náð að jafna leikinn. Þýskaland var áfram meira með boltann og náði við og við ágætum skotum á markið en Guðbjörg Gunnarsdóttir stóð vaktina vel í markinu og varði nokkrum sinnum mjög vel. Það var vissulega talsverð pressa á íslensku vörnina allan leikinn en stelpurnar stóðust hana vel fyrir utan þessa einu sókn í upphafi seinni hálfleiks sem var nóg fyrir Heims- og Evrópumeistarana til að fá öll stigin á móti Íslandi í dag. Íslenska kvennalandsliðið getur farið stolt frá þessum leik við ríkjandi Heims- og Evrópumeistara.Liðið bætti sig með hverjum leik á Evrópumótinu og það verður gaman að sjá hvernig þetta kemur út hjá þeim þegar komast aftur í þá aðstöðu að keppa viðbestu knattspyrnuþjóðir heims. Ísland-Þýskaland 0-1 0-1 Inka Frings (51.) Tampere. Áhorfendur: 3101 Dómari: Kirsi Heikkinen frá Finnlandi (7) Skot (á mark): 3-22 (1-13) Varin skot: Guðbjörg 10 - Angerer 0 Horn: 3-10 Aukaspyrnur fengnar: 8-12 Rangstöður: 1-3 Frammistaðan hjá Íslandi í leiknum: Guðbjörg Gunnarsdóttir, markvörður 8 Átti mjög flottan leik, varði nokkrum sinnum vel auk þess að láta vel vita af sér og hjálpa vörninni hvað eftir annað með góðum úthlaupum. Sif Atladóttir, hægri bakvörður 7 Stóð sig virkilega vel í sínum fyrsta leik á mótinu. Hún var óhrædd og baráttuglöð og vann marga bolta. Katrín Jónsdóttir, miðvörður 8 Spilaði magnaðan leik. Stjórnaði vörninni eins og herforingi og hafði Birgit Prinz í vasanum í fyrri hálfleik. Var nærri því búin að skora í þeim seinni sem hefði kórónað frammistöðuna. Guðrún Sóley Gunnarsdóttir, miðvörður 7 Steig ekki feilspor frekar en fyrr í mótinu. Var einstaklega yfirveguð þegar hún vann boltann sem var margoft. Ólína Guðbjörg Viðarsdóttir, vinstri bakvörður 6 Komst vel frá sínu, barðist vel og bjargaði nokkrum sinnum vel. Mátti gera betur í spilinu. Edda Garðarsdóttir, varnatengiliður 7 Átti sinn langbesta leik í keppninni, hélt svæðinu vel og vann vel fyrir liðið. Sara Björk Gunnarsdóttir, varnatengiliður 6 Var dugleg og vann marga bolta. Kemur vel út við hliðina á Eddu í stöðu varnartengiliðs. Dóra María Lárusdóttir, hægri kantmaður 5 Komst ekki mikið í takt við leikinn, var ekki mikið í boltanum og ekki nógu áræðin þegar hún var með hann. Katrín Ómarsdóttir, sóknartengliður 7 Var einn besti leikmaður liðsins í fyrri hálfleik, hugrökk að halda boltanum og tilbúin að skapa eitthvað fram á við. Hólmfríður Magnúsdóttir, vinstri kantmaður 5 Lét finna vel fyrir sér og barðist vel. Sinnti varnarvinnunni vel en það kom mjög lítið út úr henni sóknarlega. Var enn að reyna að gera of flókna hluti. Margrét Lára Viðarsdóttir, framherji 6 Var ekki öfundsverð af hlutverki sínu frekar en áður í keppninni. Fékk ekki mikið boltann en vann vel í varnarvinnunni. Átti að nýta færið sitt betur. Varamenn 71. Erla Steina Arnardóttir kom inn fyrir Dóru Maríu Lárusdóttur - 71. Rakel Hönnudóttir kom inn fyrir Hólmfríði Magnúsdóttur - 87. Fanndís Friðriksdóttir kom inn fyrir Katrínu Ómarsdóttur -
Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Sextán ára stjarna Vals heillar Körfubolti Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Enski boltinn „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Kristinn kveður Breiðablik: „Hlutirnir fara ekki alltaf eins og maður sér þá fyrir sér“ Íslenski boltinn Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Körfubolti „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Fleiri fréttir Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Kristinn kveður Breiðablik: „Hlutirnir fara ekki alltaf eins og maður sér þá fyrir sér“ Orri Steinn skoraði í miklum markaleik Karólína skoraði og fullkomin byrjun Inter heldur áfram Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flug Freys heldur áfram: „Þetta er alveg ótrúlega ljúft“ Siggi Raggi einu stigi frá titlinum Tómas gat ekki stöðvað niðurlægingu Hearts Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Thelma skoraði í toppslag og titillinn blasir við Löng bið eftir sigri lengist enn Stefán Ingi skoraði af stysta mögulega færi Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Sjáðu mörkin: KR tryggði annað sætið og fallbaráttan tók óvænta stefnu „Þetta var allt of mikið“ FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Manzambi reyndist hetja Aston Villa Ólafur hafði betur í Íslendingaslag Keflavík - KR 2-3 | Gabríel gulltryggði annað sæti Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Þór - Stjarnan 3-1 | Þórsarar fyrir ofan fallstrikið eftir frábæran sigur Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Fjölnir fær Ívar Ingimars til starfa Uppgjörið: Valur - KA 4-1 | Brekkan brött fyrir KA Sjá meira
Kristinn kveður Breiðablik: „Hlutirnir fara ekki alltaf eins og maður sér þá fyrir sér“ Íslenski boltinn
Kristinn kveður Breiðablik: „Hlutirnir fara ekki alltaf eins og maður sér þá fyrir sér“ Íslenski boltinn