Innlent

Yfirlýsing frá Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Elsa Friðfinnsdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.
Elsa Friðfinnsdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna fréttar af Sjúkraliðafélagi Íslands, þar sem þeir telja að hjúkrunarfræðingar gangi í þeirra störf.

„Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga harmar þau ummæli um hjúkrunarfræðinga og hjúkrunarfræðinema sem fram koma í grein á vefsvæði Sjúkraliðafélags Íslands þann 2. desember og birt voru á visir.is. Stjórn Fíh vísar því á bug að hjúkrunarfræðingar og hjúkrunarfræðinemar telji það ekki skyldu sína að svara kalli skjólstæðinga. Slíkur málflutningur er fráleitur og dæmir sig sjálfur. Það er einnig fráleitt að fullyrða að hjúkrunarfræðingar séu ráðnir í störf sjúkraliða því öll hjúkrunarstörf sem sjúkraliðar inna af hendi felast í störfum hjúkrunarfræðinga.

Hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar hafa um árabil verið nánar samstarfsstéttir í hjúkrunarþjónustu við skjólstæðinga heilbrigðiskerfisins. Fullyrða má að samstarf stéttanna sé víðast farsælt. Það byggir á umhyggju fyrir skjólstæðingunum og miðar að því að ná sameiginlegu markmiði, það er að bæta líðan og heilsu þeirra er þjónustunnar njóta.

Við skipulagningu heilbrigðisþjónustu þarf öryggi skjólstæðinganna og gæði þjónustunnar alltaf að vera í öndvegi. Menntun heilbrigðisstétta er auðurinn í heilbrigðiskerfinu og sá þáttur sem mestu skiptir varðandi árangur þjónustunnar. Menntun og ábyrgðarsvið hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða er afar ólíkt og því sérstaklega mikilvægt á samdráttartímum að tryggja sjúklingum örugga og góða þjónustu þeirra starfshópa sem hæfastir eru," segir í yfirlýsingunni.


Tengdar fréttir

Hjúkrunarfræðingar ráðnir í störf sjúkraliða

Sjúkraliðafélagi Íslands hafa borist kvartanir yfir að verið sé að ráða hjúkrunarfræðinga í störf sjúkraliða. Einnig er kvartað yfir að hjúkrunarnemar séu ráðnir í störf sjúkraliða. Þetta kemur fram í frétt á heimasíðu félagsins. Með þessu telur félagið að mjög sé brotið á sjúkraliðum og eru gerðar alvarlegar athugasemdir við fyrirkomulagið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×