Ísland fer ekki á HM - tap í Makedóníu Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 10. júní 2009 15:15 Eggert Gunnþór Jónsson og Grétar Rafn Steinsson svekktir eftir fyrra mark Makedóna. Nordic Photos / Getty Images
Ísland tapaði í dag, 2-0, fyrir Makedóníu ytra í undankeppni HM 2010. Þar með er ljóst að þeir litlu möguleikar sem Ísland átti á að komast í úrslitakeppni HM í Suður-Afríku eru ekki lengur fyrir hendi. Leikurinn var nokkuð bragðdaufur og þá sér í lagi síðari hálfleikurinn. Ísland átti varla færi í þeim síðari og ekki voru þau mörg í þeim fyrri. Varnarleikur íslenska liðsins var þokkalegur og þá sér í lagi markvarsla Gunnleifs Gunnleifssonar sem var eins og svo oft áður besti leikmaður íslenska liðsins. Aco Stojkov skoraði fyrra mark Makedóna á tíundu mínútu leiksins með skalla og varamaðurinn Filip Ivanovski innsiglaði sigurinn með marki af stuttu færi á 86. mínútu. Flestir leikmenn íslenska liðsins náðu sér ekki á strik í dag. Kristján Örn Sigurðsson átti sem fyrr fínan leik í hjarta íslensku varnarinnar og félagar hans í vörninni sluppu ágætlega frá sínu ef frá eru talin nokkur mistök sem reyndust stundum dýrkeypt. Miðjuspil íslenska liðsins var nánast ekki til staðar í leiknum en þeir Brynjar Björn Gunnarsson og Stefán Gíslason voru aðallega að hjálpa til í vörninni. Eggert Gunnþór Jónsson var einnig nokkuð duglegur á miðjunni en hjálpaði sóknarleiknum lítið. Emil Hallfreðsson var ágætur í fyrri hálfleik en Pálmi Rafn Pálmason náði sér ekki á strik. Arnór Smárason fékk úr litlu að moða og gat lítið gert í þau skipti sem hann fékk boltann. Leiknum var lýst beint á Boltavakt Vísis og Fréttablaðsins og má lesa hana hér: Ísland - Makedónía.
Mest lesið Rekinn frá Stjörnunni Körfubolti Skömmin sé nægileg refsing: „Það sem gerðist þetta kvöld er óásættanlegt“ Fótbolti Ingibjörg orðlaus: „Hversu heppinn er þessi litli strákur?“ Fótbolti „Stígðu út úr torfkofanum, kona“ Sport Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Íslenski boltinn Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Sport Orri hélt liðsfund án aðkomu Arnars Fótbolti Bjarni Jó hættur Íslenski boltinn Bakgarður í rigningu og roki: „Stjórna ekki veðrinu en get búið mig undir það“ Sport „Íslensk knattspyrna er að kveðja mjög góðan mann“ Fótbolti Fleiri fréttir Orri hélt liðsfund án aðkomu Arnars Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Bjarni Jó hættur Kjartan samþykkti erfiða áskorun: „Á dauða mínum átti ég von“ Skömmin sé nægileg refsing: „Það sem gerðist þetta kvöld er óásættanlegt“ Ingibjörg orðlaus: „Hversu heppinn er þessi litli strákur?“ Infantino baðst afsökunar en neitaði að svara fjölmiðlum Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Fallegt Evrópukvöld fyrir Íslendingana Bournemouth nýtur lífsins á nýjum slóðum en Willum spilaði lítið Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Mikael meiddur af velli í Belgíu Orri nálægt sigurmarki á 90 sekúndum Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Arnar um agabrot landsliðsmanna: „Mikil vonbrigði fyrir mig persónulega“ Vill draga Ronaldo aftur inn í landsliðið Hegðun erkifjenda þeirra ekki komið á óvart gegn Bayern München „Íslensk knattspyrna er að kveðja mjög góðan mann“ Leynilegt ráðabrugg gæti ógnað endurkjöri Infantino Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Sjáðu PSG refsa City, ótrúlegan viðsnúning Real og öll hin Amin fékk mynd af sér með skúrki Bayern Leikur liðs Elíasar færður vegna mótmæla Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Freyr fann sig knúinn til að setja nýja reglu Bo Johansson er látinn Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Örlög Elísabetar í höndum fyrrverandi markvarðar Liverpool Sjá meira