Fótbolti

Veigar á bekknum er Nancy tapaði fyrir Monaco

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Veigar fær lítið að spila þessa dagana.
Veigar fær lítið að spila þessa dagana. Nordic Photos/Getty Images

Landsliðsmaðurinn Veigar Páll Gunnarsson kom ekkert við sögu þegar félag hans, Nancy, tapaði fyrir Monaco, 0-1, í franska boltanum.

Veigar Páll hefur ekki átt upp á pallborðið hjá þjálfara félagsins síðan hann kom þangað frá Stabæk og á því varð engin breyting í dag.

Nancy er í fimmtánda sæti deildarinnar en Monaco í því níunda.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×