Fótbolti

Ronaldo á skotskónum með Corinthians

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ronaldo er farinn að raða inn mörkum með Corinthians
Ronaldo er farinn að raða inn mörkum með Corinthians Mynd/AFP

Brasilíumaðurinn Ronaldo er kominn á fulla ferð með liði sínu Corinthians í brasilíksa fótboltanum og er kappinn farinn að raða inn mörkum í Paulista-fylkiskeppninni.

Ronaldo skoraði tvö mörk í 2-2 jafntefli á móti Gum og hefur þar með skorað 4 mörk í 5 leikjum með liðinu. Fyrra mark Ronaldo kom úr vítaspyrnu en það síðara skoraði hann með þrumuskoti eftir laglegan einleik.

Ronaldo er greinilega búinn að ná sér af hnémeiðslunum sem enduðu feril hans hjá AC Milan en auk þess að skora mörkin tvö skapaði hann fullt af möguleikum fyrir félaga sína.

Ronaldo lék þarna í fyrsta sinn heilan leik en hann kom inn á sem varamaður í fyrstu tveimur leikjum sínum með Corinthians.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×