DAKAR: Gull og silfur Volkswagen 17. janúar 2009 15:32 Giniel de Villiers á Volkswagen var fljótastur allra í 14 daga Dakar rallinu. Mynd: AFP
Volkswagen lauk Dakar rallinu í Argentínu með sigri í bílaflokki. Suður Afríkumaðurinn Giniel de Villiers kom fyrstur í mark, en á eftir honum Ameríkumaðurinn Mark Mark Millier á samskonar bíl. Robby Gordon á Hummer varð þriðji. Lengi vel leit út fyrir að Carlos Sainz myndi hafa sigur i Dakar, en hann velti bíl sínum ofan í árfarveg fyrir tveimur dögum. Þá var Volkswagen í fyrstu þremur sætunum. Eftir veltu Sainz ákvað Volkswagen að ekki yrði slagur á milli ökumanna um fyrsta sætið. Í gær munaði aðeins tveimur mínútum á Villiers og Miller. Báðir sættu sig við ákvörðun keppnisstjóra liðsins, en litlar líkur voru á að Gordon á Hummer myndi ógna þeim. Hann var einni og hálfri klukkustund á eftir í upphafi dags. Gordon sprengdi svo dekk í dag og tapaði tíma. Villiers ók samt af miklu kappi í dag, til að sýna hvað í honum býr. Hann náði besta tíma á síðustu sérleiðinni sem var á hraðri og flæðandi 100 km sérleið. Með sigrinum hefur Volkswagen brotið blað í sögu Dakar, því bíll með díslevél vann i fyrsta skipti í sögu rallsins. Villiers lauk mótinu 9 mínútum á undan liðsfélaganum Miller. Mitsubishi sem hefur unnið Dakar rallið síðustu ár var í basli með nýjan sérsmíðaðan Lancer bíl og komst ekki á verðlaunapall að þessu sinni. Norðmaður varð fjórði í rallinu, en Ivar Erik Tollefsen á Nissan varð rúmlega 6 klukkutímum á eftir fyrsta bíl, en hann ók bensínknúnum pallbíl. Minnstu munaði að hann færi sömu leið og Sainz fyrir tveimur dögum, en hann slapp með skrekkinn eftir viðvörun frá nærstöddum aðilum. Lokastaðan 1. Giniel de Villiers Volkswagen 48:10:57 2. Mark Miller Volkswagen + 8:59 3. Robby Gordon Hummer + 1:46:15 4. Ivar Erik Tollefsen Nissan + 6:04:34 5. Krzysztof Holowczyc Nissan + 6:37:49 6. Dieter Depping Volkswagen + 8:43:29 7. Miroslav Zapletal Mitsubishi +11:03:08 8. Leonid Novitskiy BMW +13:15:13 9. Guerlain Chicherit BMW +14:49:49 10. Joan Roma Mitsubishi +17:27:46
Mest lesið Fyrrum dýrasti enski leikmaðurinn mættur í F-deildina Fótbolti Stuðningsmenn Palace mótmæla ákvörðun UEFA Fótbolti Elvar Már til Póllands Körfubolti „Við erum alls ekki hættir, þetta er rétt að byrja“ Fótbolti Erlendum leikmönnum Ármanns fækkar um einn Körfubolti Uppgjörið: Breiðablik - Egnatia 5-0 | Algjör einstefna á Kópavogsvelli Fótbolti Ásthildur skoraði átján mörk í stórsigri íslensku stelpnanna Handbolti Dagskráin í dag: Snóker og golf, aftur Sport Sænsku meistararnir örugglega áfram Fótbolti Cifuentes tekur við Leicester Fótbolti Fleiri fréttir Dagskráin í dag: Snóker og golf, aftur Fyrrum dýrasti enski leikmaðurinn mættur í F-deildina Stuðningsmenn Palace mótmæla ákvörðun UEFA Elvar Már til Póllands „Við erum alls ekki hættir, þetta er rétt að byrja“ Erlendum leikmönnum Ármanns fækkar um einn Cifuentes tekur við Leicester Sænsku meistararnir örugglega áfram Uppgjörið: Breiðablik - Egnatia 5-0 | Algjör einstefna á Kópavogsvelli Oladipo með augastað á endurkomu Enginn Kobe Bryant á topp tíu yfir þá bestu í sögunni Elvis snúinn aftur „Allt orðið eðlilegt á ný“ Liverpool tilbúið að slá metið aftur Ásthildur skoraði átján mörk í stórsigri íslensku stelpnanna Púttaðstaða eins og hjá Tiger og Rory Seldu fyrir 44 milljónir evrur meira en þeir borguðu Man. Utd ári áður „Ekki jafn miklar þreifingar og ekki jafn lokaður leikur“ KR-ingar hafa enn ekki unnið útileik í sumar „Margt dýrmætt á þessum ferli“ Valskonur þurfa að vinna hollensku meistarana til að fá Íslendingaslag Íslandsvinirnir í Puma borga Manchester City 165 milljarða Segist hafa farið 47 sinnum holu í höggi á ferlinum Kaupa ekki Ekitike vegna þess að þeir ætli að selja Isak til Liverpool Segir að HM félagsliða verði stærri en Meistaradeildin Sjáðu mörkin úr Bestu: Hetjudáðir fyrirliðans og alvöru innkoma Einn af hinum smávöxnu í afmæli Yamal kemur stráknum til varnar Endaði á sjúkrahúsi eftir árás frá kú Trump fékk alvöru bikarinn en Chelsea aðeins eftirlíkingu Wembanyama fær grænt ljós frá læknateymi Spurs Sjá meira