Innlent

Samráð við UNESCO um Valhallarreitinn

Valhöll brunnin Þingvallanefnd er að hefja undirbúning að því að taka ákvörðun um framtíð staðarins þar sem Hótel Valhöll stóð áður.Fréttablaðið/Arnþór
Valhöll brunnin Þingvallanefnd er að hefja undirbúning að því að taka ákvörðun um framtíð staðarins þar sem Hótel Valhöll stóð áður.Fréttablaðið/Arnþór

Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna, UNESCO, mun koma að ákvörðun um framtíð reitsins þar sem Hótel Valhöll stóð á Þingvöllum.

Hótel Valhöll gjöreyðilagðist í stórbruna 10. júlí í sumar. Rústirnar voru fjarlægðar og síðan tyrft yfir reitinn. Enn er eftir að ákveða hvað gert verður á staðnum. Þingvallanefnd ræddi málið á fundi í haust.

„Í máli nefndarmanna kom fram að öll ákvarðanataka varðandi Valhallarreitinn er viðkvæm og mikilvægt að ákvarðanir séu teknar að vel ígrunduðu máli. Sú hugmynd kom upp að landsmenn fái tillögurétt um nýtingu Valhallarreitsins,“ segir í fundargerð Þingvallanefndar.

Þingvellir fóru á heimsminjaskrá UNESCO 2004. Stofnunin gerir strangar kröfur til staða á skránni. Að því er kom fram á fundi Þingvallanefndar koma UNESCO og forsætisráðuneytið að ákvörðunum um Valhallarreitinn.

Eins og áður segir íhugar Þingvallanefnd að leita til almennings með hugmyndir að uppbyggingu á Vallarreitnum. „Allt í kringum Vallhallarreitinn er vatn, sem torveldar framkvæmdir þar í kring, engin hreinlætisaðstaða er lengur á þessum stað,“ segir í fundargerðinni.

Fulltrúar arkitektastofanna VA-arkitekta og Einrúm-arkitekta hafa rætt við nefndarmenn og Sigríður Margrét Guðmundsdóttir og Kjartan Ragnarsson í Landnámssetrinu í Borgarnesi vilja kynna þeim sínar hugmyndir.

Kjartan segist reyndar telja að ekki eigi að byggja að nýju þar sem Hótel Valhöll stóð áður heldur eigi þar að ríkja ró og kyrrð. Þau Sigríður hafi hugmynd að sérstöku setri um hina viðburðaríku söguöld sem hefst með stofnun Alþingis á Þingvöllum árið 930 og sumir afmarki í hinn endann með biskupsvígslu Ísleifs Gissurarsonar árið 1056.

„Þetta er langflottasta tímabil Íslandssögunnar,“ segir Kjartan sem kveður Sögualdarsetrið geta verið hjá fræðslumiðstöðinni á Hakinu. Þá hefur Þingvallanefnd fengið erindi frá Kristbirni Helga Björnssyni og Svövu Lóu Stefánsdóttur um uppbyggingu svæðis um búskaparhætti á þjóðveldisöld

. gar@frettabladid.is



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×