Ólafur mun kalla inn nýja menn í landsliðið Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 6. júní 2009 22:05 Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari. Mynd/Stefán
Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari mun kalla á nýja leikmenn í íslenska landsliðshópinn í stað þeirra sem munu missa af leiknum gegn Makedóníu á miðvikudaginn vegna leikbanna og meiðsla. Ísland tapaði fyrir Hollandi í dag, 2-1. Indriði Sigurðsson, Aron Einar Gunnarsson og Hermann Hreiðarsson fengu allir áminningar í kvöld en þeir voru þegar búnir að fá gult spjald fyrr í keppninni. Þeir verða því í banni á miðvikudaginn. „Það er líka mjög tvísýnt með þá Eið Smára og Stefán Gíslason," sagði Ólafur eftir leikinn í kvöld. „Þeir eiga við meiðsli að stríða. Það eru smá „hnjösk" hér og þar." Hann mun kalla nýja leikmenn í hópinn í stað þeirra sem detta út. „En það er eitthvað sem ég þarf að skoða á morgun. Ég get ekki hugsað um þau mál akkurat þessa stundina." Hann segir að liðið muni fara þrátt fyrir allt að fullum krafti í leikinn gegn Makedóníu ytra, þrátt fyrir forföll og þá staðreynd að Ísland á litla sem enga möguleika á sæti á HM. „Ekki spurning. Við förum þangað til að ná í þrjú stig. Kristján (Guðmundsson, þjálfari Keflavíkur) er út í Makedóníu og við fáum skýrslu frá honum á morgun," sagði Ólafur en Makedónar gerðu markalaust jafntefli við Norðmenn í dag. Um leikinn í dag sagði hann menn skiljanlega hafa verið nokkuð svekkta í hálfleik. Holland skoraði tvö mörk á fyrsta stundarfjórðungnum og fékk mýgrút tækifæra til að bæta fleiri mörkum við fyrir leikhlé. „Við sáum að við þurftum að gera eitthvað. Ég held að menn hafi svarað því ágætlega. Við settum varnarsinnaðri miðjumann inn á í hálfleik og vorum agaðri í að halda okkar svæðum. Það gekk öllu betur og seinni hálfleikurinn var fínn að okkar hálfu."
Mest lesið Leik Mexíkó og Englands seinkað um klukkutíma Fótbolti „Eins og þjóðhátíðardagur og gamlárskvöld í senn“ Fótbolti Gagnrýnir ákvörðun FIFA: „Ég vissi ekki að þetta væri 1. apríl“ Fótbolti Ronaldo á sínu síðasta HM: „Þið hafið reynt að drepa mig í 23 ár“ Fótbolti Týndur í tíu daga: Ætlaði að fara á HM en skilaði sér aldrei á staðinn Sport Ekki tapað fótboltaleik í heilt ár Fótbolti Leikmenn Mexíkó þurftu að skila lúxusúrunum Fótbolti Markavélin Haaland sendi Brassana heim af HM Fótbolti Segja hegðun Paragvæ til skammar Fótbolti Margir orðnir þreyttir á Norðmönnum á HM og halda með Brasilíu Fótbolti Fleiri fréttir Leik Mexíkó og Englands seinkað um klukkutíma „Eins og þjóðhátíðardagur og gamlárskvöld í senn“ Ekki tapað fótboltaleik í heilt ár Markavélin Haaland sendi Brassana heim af HM Gagnrýnir ákvörðun FIFA: „Ég vissi ekki að þetta væri 1. apríl“ Leikmenn Mexíkó þurftu að skila lúxusúrunum Ronaldo á sínu síðasta HM: „Þið hafið reynt að drepa mig í 23 ár“ Mbappé: Héldu sennilega að við myndum mæta í smóking Skutu upp flugeldum til að trufla nætursvefn ensku leikmannanna Neitar því að leikmennirnir sínir hafi notað Viagra Segja hegðun Paragvæ til skammar Trump þakkar FIFA fyrir Balogun fær Ronaldo-meðferð hjá FIFA og spilar gegn Belgum Real Madrid staðfestir komu Hollendingsins Rígur úr ensku úrvalsdeildinni heldur áfram í kvöld Segir Klopp taka við þýska landsliðinu Segir skilið við bæði landslið og félagslið Maður dagsins á HM: „Býflugan“ fann gleðina aftur í Katalóníu Sautján ára hetja Breiðabliks: Kemur þegar maður trúir á Guð og sig sjálfan Sjáðu mörk og atvik helgarinnar í Bestu deildinni „Gleður mitt Blikahjarta“ Dramatík í kringum enska landsliðið: Eldingar, hótelhávaði og njósnir „Með ólíkindum að við höfum tapað þessum leik“ Þór yngri en þegar báðir bræður hans skoruðu sitt fyrsta mark Margir orðnir þreyttir á Norðmönnum á HM og halda með Brasilíu Afríska innrásin á HM stöðvuð í fæðingu Skoraði eitt fallegasta mark HM og leitaði uppi kærustuna í stúkunni Skítabrögð Paragvæja stöðvuðu ekki Frakka Meira en hundrað lögreglumenn fyrir utan HM-hótel Englands Solbakken neitar að hafa sýnt Ancelotti vanvirðingu Sjá meira