Ronaldo fagnaði eins og brjálæðingur Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. mars 2009 12:15 Ronaldo er farinn að skora fyrir Corinthians Mynd/AFP
Brasilíumaðurinn Ronaldo gjörsamlega missti stjórn á sér þegar hann opnaði markareikninginn fyrir Corinthians í nótt. Ronaldo kom inn á sem varamaður og tryggði Corinthians 1-1 jafntefli. Ronaldo skoraði jöfnunarmarkið með skalla í uppbótartíma en hann lék aðeins síðasta hálftíma leiksins. Corinthians var þarna að spila við nágrannana í Sao Paulo og var þetta sannkallaður derby-slagur. Ronaldo lék á dögunum sinn fyrsta leik í 387 daga síðan að hann meiddist illa á hné í leik með AC Milan og þetta var síðan fyrsta markið hans í meira en ár. Þetta var því stór stund fyrir Ronaldo sem gjörsamlega missti stjórn á sér eftir að hann skoraði markið. Ronaldo hljóp beint til stuðningsmanna Corinthians fyrir aftan annað markið og stökk upp á grindverkið sem skilur á milli þeirra og vallarins. Þar fagnaði hann eins og brjálæðingur og var skömmu síðar orðinn aðþrengdur af bæði liðsfélögum og fjölmiðlamönnum. "Ég gat ekki stjórnað tilfinningum mínum. Þetta var einstök stund," sagði Ronaldo eftir leikinn en hann fékk að líta gula spjaldið fyrir atvikið. Það þurfti að stöðva leikinn í nokkrar mínútur og engu munaði að girðingin gæfi sig þegar stuðningsmennirnir stukku upp á hana á móti Ronaldo. Girðingin hélt, það slasaðist enginn sem betur fer og lögreglan náði fljótlega fullri stjórn á aðstæðum.
Fótbolti Mest lesið Williams-systurnar gera aðra tilraun að endurkomu Sport Mun Mount verða lausnin fyrir Manchester United? Fótbolti Vann Einvígið á Nesinu annað árið í röð Golf Fimmtán ára strákur skotinn til bana í miðjum leik fyrir mistök Fótbolti „Vorum miklu betri allan tímann“ Fótbolti Uppgjörið: Valur - Stjarnan 2-3 | Örvar tryggði langþráðan og mikilvægan sigur Íslenski boltinn Venni vann í Noregi en venst því ekki að vera Noregsmeistari Sport Mun Vini fara til Arsenal ef hann semur ekki við Real Madrid? Fótbolti 76 ára gömul kona vann gullverðlaun á Samveldisleikunum Sport Situr á botni deildarinnar eftir að hafa verið tekinn af velli Fótbolti Fleiri fréttir Mun Vini fara til Arsenal ef hann semur ekki við Real Madrid? „Vorum miklu betri allan tímann“ „Sigurinn var innan seilingar“ Uppgjörið: Valur - Stjarnan 2-3 | Örvar tryggði langþráðan og mikilvægan sigur Mun Mount verða lausnin fyrir Manchester United? Missti toppsætið eftir svekkjandi tap Situr á botni deildarinnar eftir að hafa verið tekinn af velli Viktor Bjarki framlengir í Kaupmannahöfn Tottenham hefur áhuga á að fá Gakpo Fær samning fram yfir næsta heimsmeistaramót Henderson genginn í raðir Chelsea Grótta sótti þrjú stig á Ísafjörð og vandræði Vestra halda áfram Chelsea kaupir strákinn sem Bellingham sló og skoraði á móti Íslandi Infantino sagður biðla til Trump um hjálp Heldur brasið áfram á Brazell í Bestu deildinni? Fimmtán ára strákur skotinn til bana í miðjum leik fyrir mistök Sjáðu mörkin og kennslustundina sem Liverpool fékk frá Leeds í seinni Víkingar og Valsarar vita nú hvað bíður þeirra í Evrópu Newcastle hafnar tilboði Arsenal í Guimaraes „Íslenski Haaland“ með þrennu í fyrsta leik Mátti ekki klæða sig við hlið hinna leikmanna Man. Utd. England dregur stuðning sinn við Infantino til baka Svona er hægt að koma Infantino frá völdum Þjálfari Man Utd hættir mánuði fyrir mót Knattspyrnukona drukknaði á leið í betra líf Leikmenn hafa neitað að koma til Juventus Gaf puttann eftir að hafa skorað gegn Frey Klifraði upp í stúku og réðst á stuðningsmann eftir að hafa verið skipt af velli UEFA hótar FIFA með lögsókn Fjögur mörk og meiðsli í slæmum seinni hálfleik gegn Leeds Sjá meira