Heimir: Handbragð Loga er komið á KR 28. maí 2009 14:54 "
Þetta verður erfitt verkefni í kvöld, það er ekki nokkur spurning. KR hefur byrjað vel með þremur sigrum í fjórum leikjum, öfugt við í fyrra þegar þeir voru með þrjú stig eftir fjóra leiki." sagði Heimir Guðjónsson þjálfari FH í samtali við Vísi þegar hann var spurður út í stórleik kvöldsins gegn KR. KR er á toppnum eftir fjórar umferðir og hefur aðeins fengið á sig eitt mark, en liðinu hefur gengið afleitlega með FH á síðustu árum. KR hefur ekki unnið FH í deildinni síðan árið 2003. "KR-liðið er mun sterkara núna en í fyrra þannig að við gerum okkur grein fyrir því að þetta verður erfiður leikur. Það var nú talað um það að varnarleikurinn gæti orðið höfuðverkur fyrir KR í sumar en þeir eru ekki búnir að fá á sig nema eitt mark," sagði Heimir. FH hefur náð að rétta úr kútnum eftir tap í fyrstu umferðinni. Við spurðum þjálfarann hvort hann væri ánægður með gengi sinna manna. "Þetta hefur aðeins skánað hjá okkur en ég held að við eigum meira inni og getum spilað betur en við höfum verið að gera. Það hefur verið ágætur stígandi í þessu hjá okkur og í síðasta leik var það liðsheildin sem var á bak við þetta, svo þetta er allt í rétta átt," sagði Heimir en hann er ekkert að velta sér upp úr fortíðinni. "FH fer ekkert í leiki nema til þess að ná í þrjú stig og það er alveg sama á hvaða velli það er. Við spilum svipað heima og úti og það þýðir ekkert að hugsa um hvort við erum með tak á KR eða ekki. Ég hef ekki hugmynd um hvernig stendur á því, en við fáum ekkert fyrir það þó við höfum unnið KR í nokkrum leikjum. KR er líka sterkara núna en það hefur verið," sagði Heimir. En af hverju er KR sterkara nú að hans mati? "Handbragð Loga Ólafssonar er komið á liðið. Það tekur tíma að setja sinn stimpil á lið og Logi hefur sýnt það hann er góður að búa til lið. Það eru framfarir hjá KR síðan hann tók við og þeir eru bara að verða betri og betri." Leikur KR og FH hefst klukkan 20 og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport. Alls eru sex leikir á dagskrá í Pepsi-deildinni í kvöld hægt verður að fylgjast með gangi mála á Boltavaktinni.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Lætur drauminn rætast og opnar kínverskan veitingastað Sport Fjölskylda skíðakappans fær ekki svör fyrr en í mars Sport „Hann sér framtíðina fyrir sér hjá Napoli“ Fótbolti Fyrirliðinn áreitti dómara og mátti ekki spila lokaleikinn Fótbolti Dagskráin í dag: Stórleikir í enska boltanum og átta manna úrslit í pílunni Sport Fílabeinsstrendingar tryggðu toppsætið í uppbótartíma Fótbolti „Ég mun ekki keppa við Rússa á meðan stríð er í gangi“ Sport Sjáðu allt það besta úr enska boltanum á árinu 2025 Enski boltinn „Feginn að þú lifðir krabbameinið af svo þú gætir séð skítaliðið þitt fara niður“ Handbolti Mbappé þurfti að játa sig sigraðan Fótbolti Fleiri fréttir „Mér var bara tjáð að þeir ætluðu að leita eitthvað annað“ Enn kvarnast úr liði Blika Leið Víkings að titlinum rifjuð upp í kvöld Þjálfar 2. flokk samhliða því að spila fyrir KR Færeysk landsliðskona til liðs við ÍBV Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Úr Bestu heim í Hauka „Þetta er stærsti klúbbur Íslands“ Sagan ekki sönn: „Veit ekki hvaðan þetta á að hafa komið“ Meira en 37 stöðugildi hjá Knattspyrnusambandi Íslands Óskar Hrafn um komu Arnórs Ingva: „Gífurlega dýrmætt fyrir KR“ Arnór Ingvi orðinn leikmaður KR Breiðablik kaupir Jónatan frá Norrköping Elías mættur til meistaranna KR sagt vera að landa Arnóri Ingva Hilmar Árni til starfa hjá KR Segir fjórðung í bók Óla ósannan Víkingur í úrslit Bose-bikarsins eftir sigur „Verið heiður að spila í appelsínugulu með frábærum liðsfélögum“ Þekkir Egilshöllina vel og skoraði gegn fyrrum félögum Strákar Heimis Guðjóns fengu slæman skell í fyrsta leik Axel verður áfram hjá Aftureldingu Kveður pabba sinn í Laugardalnum og fer til FH „Félag sem var í basli með að ná endum saman og greiða laun á réttum tíma“ Skrýtið og taktlaust: „Ég er ekkert sátt með niðurstöðuna“ Fanndís kveður sviðið: „Ég er búin að fella nokkur tár“ Gylfi með tvö og Víkingar byrja á sigri Frá Akureyri til Danmerkur Sjá meira