Ógnaði dóttur sinni með hníf 28. október 2009 18:46
Móðir sjö ára telpu hlaut nýverið skilorðsbundin dóm fyrir að hafa slegið hana með viðarfjöl og hótað að skera hana með hníf. Afar fátítt er að dómur falli í slíku máli hérlendis, en tilkynningum til barnaverndaryfirvalda, um að börn séu beitt líkamlegu ofbeldi af hálfu fullorðinna, fer þó fjölgandi. Barnaverndaryfirvöld beina nú sjónum sínum í ríkari mæli að beitingu líkamlegs ofbeldis gegn börnum - öðru en kynferðisofbeldis - og hvort þörf sé á samræmdu verklagi barnaverndarnefnda. Það hefur enda sýnt sig að aukin meðvitund um málaflokkinn hefur skilað sér í fjölgun tilkynninga til yfirvalda - á fyrstu sex mánuðum þessa árs voru þær rúmlega 300 en á sama tímabili í fyrra 257. Árið 2006 hefur sérstaklega verið skoðað, en gögn voru ekki alltaf skýr. „En þeim tilfellum sem hægt var að greina af gögnum hvað hafði átt sér stað þá höfðu flest börn verið slegin eða rassskellt með flötum lófa, en dæmi um að foreldrar kýldu börn með hnefa, tóku þau hálstaki, hrintu, spörkuðu og þvíumlíkt," segir Steinunn Bergmann, félagsráðgjafi hjá Barnaverndarstofu. Í byrjun októbermánaðar, hlaut móðir sjö ára telpu skilorðsbundin dóm fyrir að hafa slegið dóttur sína með viðarfjöl úr rimlagardínu í hendur, líkama og höfuð, auk þess sem henni var hótað með hníf. Segir í dómnum að ofbeldið hafi haft djúpstæð áhrif á telpuna og skapað hjá henni mikið óöryggi. Málið er óvenjulegt því líkamlegar refsingar gangvart börnum er almennt ekki viðurkennd uppeldisaðferð hér á landi, eins og víða annars staðar. Afar fá mál eru kærð til lögreglu og enn færri fara fyrir dóm. Dæmið hér að framan sýnir þó að ekki eru öll börn óhult. „Það er mjög hætt við að vandinn sé dulinn og við vitum ekki um öll þau tilvik sem eiga sér stað," segir Steinunn.
Mest lesið „Stærsti höfundaréttarþjófnaður sögunnar“: Skora á íslensk stjórnvöld að feta í fótspor Dana Innlent „Ég hef engar vísbendingar fengið um að þetta sé að gerast“ Innlent Stoltur faðir fegurðardrottningar gekk frá Gleðigöngunni með óbragð í munni Innlent Stálu myndavélum fyrir þrjár milljónir: „Grunar að þessu hafi verið stolið eftir pöntun“ Innlent Ósköp venjuleg kona ráðin sem leigumorðingi eftir kynni á stefnumótaforriti Erlent Söguleg sátt milli há- og lágmenningar á Klapparstíg Lífið Óprúttnir aðilar hóta rofinni rafmagnstengingu berist greiðsla ekki strax Innlent Teiknaði hakakross á hurðina hjá nágrannanum Innlent Allir gangi hamingjusamir úr nýjustu sundlaug landsins Innlent Öfgahægriflokkur mælist stærstur í Þýskalandi Erlent Fleiri fréttir Rannsókn á „bíræfnum“ þjófnaði á viðkvæmu stigi Niðurgreiðsla sálfræðiþjónustu verði tryggð Niðurgreidd sálfræðiþjónusta, tollar á lyf og hitamet Óprúttnir aðilar hóta rofinni rafmagnstengingu berist greiðsla ekki strax „Ég hef engar vísbendingar fengið um að þetta sé að gerast“ Allir gangi hamingjusamir úr nýjustu sundlaug landsins Ástandið á Gasa: 42 prósent telja að Íslendingar ættu að beita sér meira „Stærsti höfundaréttarþjófnaður sögunnar“: Skora á íslensk stjórnvöld að feta í fótspor Dana Teiknaði hakakross á hurðina hjá nágrannanum Stálu myndavélum fyrir þrjár milljónir: „Grunar að þessu hafi verið stolið eftir pöntun“ Skrefi nær draumnum um þjónustuíbúð með vinningnum Minkurinn stakk sér á kaf eftir fiski í Elliðaám Íslendingur á Spáni sagður þungt haldinn vegna hitaslags „Ómetanlegur fjársjóður“ í heimsókn á Íslandi Tilkynnt um bíl fullan af bensínbrúsum Stoltur faðir fegurðardrottningar gekk frá Gleðigöngunni með óbragð í munni Tollarnir sem bíta nú þegar, sögulegur fundur og fjársjóður Fækkar sífellt í Þjóðkirkjunni Rithöfundur ráðinn til varnarmálaskrifstofunnar Barinn við barinn en gerandinn farinn Tólf milljónir í segulómtæki sem dró að sér skúringabúnað Gerðu langtímasamning um niðurgreidd liðskipti og brjóstaminnkun Dagbjartur aðstoðar Daða Má Innviðaráðherra leggur af stað í fundaferð um samgöngumálin Áslaug Sigríður Alfreðsdóttir er látin Ellefu ára hetja bjargaði systur sinni frá drukknun Telur enn mögulegt að ná samkomulagi Fagnar áformum um mótun atvinnustefnu Úrskurðaður í gæsluvarðhald grunaður um íkvekju Hlið við Reynisfjöru, tollar og yfirlýsing leiðtoga ESB Sjá meira
„Stærsti höfundaréttarþjófnaður sögunnar“: Skora á íslensk stjórnvöld að feta í fótspor Dana Innlent
„Stærsti höfundaréttarþjófnaður sögunnar“: Skora á íslensk stjórnvöld að feta í fótspor Dana Innlent