Fjárreiður Álftaness á borði ríkisstjórnar 15. desember 2009 06:00
Vonlítil fjárhagsstaða sveitarfélagsins Álftaness er á dagskrá fundar ríkisstjórnarinnar í dag. Skýrsla sem eftirlitsnefnd með fjárreiðum sveitarfélaga gerði um fjármál Álftaness var tilbúin 7. desember. Samgöngu- og sveitarstjórnaráðuneytið hafnaði því í gær að afhenda afrit skýrslunnar. „Skýrsla um stöðu fjármála sveitarfélagsins Álftaness verður gerð opinber í kjölfar fundar ríkisstjórnarinnar á morgun en þar ráðgerir samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra að kynna fjárhagsstöðu sveitarfélagsins og þau úrræði sem hugsanlega verður gripið til í því skyni að aðstoða sveitarfélagið," svaraði ráðuneytið. Kristján L. Möller ráðherra sagði málið enn í vinnslu. Hann myndi tjá sig um það síðar. Skuldir Álftaness eru um 6,5 milljarðar króna. Sú upphæð er um fimmfaldar árstekjur bæjarsjóðs. Afar þung í skauti er ný sundlaug sem bærinn þarf að borga yfir 200 milljónir króna í leigu fyrir á næsta ári þrátt fyrir að nú hafi náðst að semja um lækkun leigunnar. Pálmi Másson bæjarstjóri sagði í gær að skýrslan hefði verið afhent bæjarstjórninni í trúnaði. Efni hennar var rætt á fundi stjórnar Sambands sveitarfélaga á föstudag og á bæjarráðsfundi á Álftanesi á fimmtudag. Til greina kemur að álögur á íbúa Álftaness verði hækkaðar tímabundið um 25 prósent og að Álftanes fái styrk úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Sameining við önnur sveitarfélög er líka valkostur. Einnig er mögulegt að ráðuneytið taki síðar yfir fjármál sveitarfélagsins því ljóst sé að ekki rætist úr þeim í bráð og að sveitarstjórnin hafi vanrækt svo skyldur sínar að vandræði hafi af hlotist, fjármálastjórnin verið í ólestri og aðrar ráðstafanir muni ekki duga. - gar
Mest lesið Hyggst ekki segja af sér þrátt fyrir reiði vegna Epstein-listans Erlent Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Innlent Engu mátti muna á að alvarlegur árekstur yrði á þjóðveginum Innlent Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni Innlent Skipstjóri handtekinn talinn vera undir áhrifum Innlent Yfirleitt Íslendingar sem aki utan vega Innlent Göngumaður slapp ómeiddur úr sjálfheldu við Hestskarð Innlent „Ég var örugglega getinn í Land Rover“ Innlent „Ekki bara fávísir hitabeltisbúar sem eru að detta á hausinn“ Innlent „Það gæti tekið bara fimmtán mínútur að kála þeim“ Innlent Fleiri fréttir Kvikuhlaup hafið í Svartsengi Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Göngumaður slapp ómeiddur úr sjálfheldu við Hestskarð Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni „Ekki bara fávísir hitabeltisbúar sem eru að detta á hausinn“ Yfirleitt Íslendingar sem aki utan vega Skipstjóri handtekinn talinn vera undir áhrifum „Ég var örugglega getinn í Land Rover“ „Valda fleiri húðkrabbameinum en sígarettur lungnakrabbameini“ Göngumaður í sjálfheldu við Hestskarð Ákall um ljósabekkjabann og gengið fyrir Ólöfu Töru Enn rís land í Svartsengi Engu mátti muna á að alvarlegur árekstur yrði á þjóðveginum Hleypti líklega óvart úr Kominn úr lífshættu eftir stunguárás við Mjóddina Gísli Jóns í tveimur útköllum frá miðnætti „Það gæti tekið bara fimmtán mínútur að kála þeim“ Maðurinn er fundinn Ekki sekur um að hafa valdið dauða manns í Kiðjabergi Fagnar áherslum ríkisstjórnarinnar í sjávarútvegi Ræðukóngurinn talaði í rúman sólarhring Miklar bikblæðingar á Norðurlandi Ræðukóngur Alþingis tekinn tali og varað við bikblæðingum á þjóðvegunum Þriggja ára barn ráfaði af leikskólanum og í Bónus Varnarviðbragð húðarinnar að verða brún í sól „Það þarf enginn að vera með vopn nema sérsveitin“ Hitinn 14 til 28 stig í dag: Vara við því að skilja hundinn eftir í bílnum Fjöldi ökumanna sektaður fyrir að leggja ólöglega Akureyri skelfur vegna jarðhræringa við Grímsey Inga ætlar ekki að biðjast afsökunar Sjá meira