Neyðarbeiðni vegna Gaza 8. janúar 2009 23:40 Palestínsk börn. Mynd/ Reuters.
Félaginu Íslandi - Palestínu hefur borist neyðarbeiðni frá ísraelsku samtökunum Physicians for Human Rights um aðstoð við kaup á þeim nauðsynjum sem spítalar á Gaza hafa óskað eftir, svo sem lyfjum, rúmum, súrefni og sótthreinsuðum áhöldum. Þetta kemur fram í tilkynningu sem félagið sendi frá sér í kvöld. Þar segir að heimurinn horfi nú upp á grimmúðleg illvirki Ísraelshers sem beiti til þess bandarískum vígbúnaði og hernaðartækni. Með ofurefli sé níðst á varnarlausum palestínskum íbúum eins þéttbýlasta svæði heims, sem séu lokaðir inni og geta hvergi flúið af svæðinu sem breytt hefur verið í risafangelsi. Helmingur íbúanna á Gaza eða 750 þúsund manns séu undir 14 ára aldri. Yfir helmingur íbúana séu flóttamenn, sem þrátt fyrir ályktanir Sameinuðu þjóðanna hafi verið neitað um þann rétt sinn að fá að snúa aftur til heimalands síns í áratugi af ísraelskum yfirvöldum. Frá því að innrás Ísraelshers hófst á Gaza 27. desember hafi um 800 Palestínumenn verið drepnir, þar af um 300 börn. Meira en 3.000 manns hafi særst og hundruðir fleiri þurfi á læknisaðstoð að halda. Heilbrigðiskerfið, sem hafi fyrir innrásina verið búið að hljóta ómældan skaða vegna 18 mánaða umsáturs Ísraela um Gaza, hafi ekki tök á að sinna særðum og slösuðum. Fregnir berist af því að læknar neyðist til að forgangsraða læknisþjónustu og framkvæma aðgerðir án nauðsynlegra áhalda og lyfja.
Mest lesið Trump sýndi verkamanni puttann Erlent Kannast ekki við lýsingar leigubílstjóra Innlent Spyr hvort það hafi borgað sig að koma Flokki fólksins til valda Innlent Vongóð um stuðning Miðflokksins Innlent Notað á Íslandi þrátt fyrir að hafa mistekist annars staðar Innlent Trump heitir íhlutun ef stjórnvöld hefja aftökur Erlent Trump segir Nielsen í vondum málum Erlent Keyptu tæki sem gæti útskýrt Havana-heilkennið Erlent Fundurinn í Washington gæti reynst örlagaríkur Erlent Borgin beri ábyrgð sem eigandi Innlent Fleiri fréttir Kannast ekki við lýsingar leigubílstjóra Alþingi kemur saman í dag eftir jólafrí Vongóð um stuðning Miðflokksins Spyr hvort það hafi borgað sig að koma Flokki fólksins til valda Notað á Íslandi þrátt fyrir að hafa mistekist annars staðar Bláklukka bar þremur lömbum á bænum Viðvík í Skagafirði Borgin beri ábyrgð sem eigandi Grænlendingar hnykla vöðvana og altjón í Gufunesi Mál látins manns komið til ákærusviðs Fellur frá máli sínu á hendur Hödd Fjárlögin komi í veg fyrir fjölgun nemenda Upplýsingakerfi liggur niðri og ekki hægt að hafa eftirlit Veittu ökumanni eftirför sem endaði á ljósastaur Neitar að hafa sigað lögmönnum borgarinnar á Pétur Ákærður fyrir gróf kynferðisbrot gegn sex ára stúlku Brugðið vegna ummæla lögreglumanns um Frú Ragnheiði Höfðu fengið ábendingu um fjölda íbúa í Brúnastekk Gæsluvarðhald Grikkjans framlengt Bein útsending: Málþing um aðlögun að loftslagsbreytingum „Vorum bara með húsið í því ástandi sem það var“ Skýr mynd komin á dularfullt andlát á Skjólbraut Umdeild mál á dagskrá og þeim fjölgar Dómur MDE staðfesti að réttarkerfið standi ekki með brotaþolum Engin fleiri mislingatilfelli greinst Borgin firrti sig allri ábyrgð á skemmunni Forsætisnefnd tekur við kvörtunum um ríkisendurskoðanda Ríkið brotlegt í einu máli en sýknað í öðru Gerður höfundur að fræðigrein sem hann skrifaði ekki Bein útsending: Fundur um fyrirhugaða atvinnustefnu Bóndinn í „miklu andlegu ójafnvægi“ þegar hann vanrækti nautgripi sína Sjá meira