Nancy öruggt með sæti í frönsku úrvalsdeildinni Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 24. maí 2009 06:00 Veigar Páll Gunnarsson í leik með íslenska landsliðinu. Mynd/Anton
Það var ljóst eftir að næstsíðasta umferðin í frönsku úrvalsdeildinni fór fram í gær að Nancy mun spila áfram í deildinni á næstu leiktíð. Nancy var nánast öruggt með sætið sitt en þrátt fyrir að liðið tapaði fyrir Marseille í gær, 2-1, á heimavelli sínum er nú ljóst að það er laust við falldrauginn. Le Havre er löngu fallið úr deildinni og Nantes heldur í mjög litla von um að bjarga sér. Fallbaráttan stendur þess að utan á milli Sochaux, Le Mans, Caen og St. Etienne en ekkert þeirra liða mætast innbyrðis í lokaumferðinni. Veigar Páll var í fyrsta sinn í leikmannahópi Nancy í rúma tvo mánuði í gær en hann hefur átt við meiðsli að stríða að undanförnu. Hann kom þó ekki við sögu í leiknum í gær. Toppbaráttan í frönsku úrvalsdeildinni er enn óráðin en baráttan stendur á milli Bordeaux og Marseille sem bæði unnu leiki sína í gær. Bordeaux stendur þó mun betur að vígi en liðið er með þriggja stiga forystu á Marseille fyrir lokaumferðina. Liðin eru þó með nánast jafnt markahlutfall og þarf því Bordeaux helst að ná í stig í lokaleik sínum gegn Caen á útivelli. Sem fyrr segir er þó Caen í bullandi fallbaráttu og því gæti það reynst strembið verkefni fyrir meistaraefnin. Marseille á heimaleik gegn Rennes sem er í sjötta sæti deildarinnar og er ekki nema tveimur stigum á eftir Toulouse og Paris Saint-Germain. Fjórða og fimmta sætið veita þátttökurétt í Evrópudeildinni á næstu leiktíð og hefur því Rennes upp á heilmikið að spila í lokaumferðinni.
Fótbolti Mest lesið Yfirgaf æfingaferð Marseille í áfalli Fótbolti „Horft illum augum á þannig taktík í hlaupaheiminum“ Sport Tilfinningaþrungin stund þegar Magnús Máni kom í mark Sport Sjáðu markaveislu Arsenal og fullkomna byrjun Tottenham Fótbolti Pólverjar bæta við sig Kana fyrir EM Körfubolti Vann hálft maraþon, fæddi barn og varð svo meistari í heilu maraþoni Sport Næst yngsti leikmaður í sögu ensku úrvalsdeildarinnar Sport Guðlaugur Victor til Danmerkur á ný Fótbolti Magnaður sigur Dags í Vestratreyju: „Núna er bara stefnan sett á ÓL“ Sport Dagskráin í dag: Fótbolti í fyrirrúmi Sport Fleiri fréttir Sjáðu markaveislu Arsenal og fullkomna byrjun Tottenham Guðlaugur Victor til Danmerkur á ný Yfirgaf æfingaferð Marseille í áfalli Keflvíkingar létu mörkunum rigna gegn Völsungi Sjálfsmark í blálokin bjargaði Börsungum Þórsarar á toppinn Orðinn langþreyttur á glímunni við Útlendingastofnun Eze í treyju númer tíu og byrjar á stórleik við Liverpool Þrír leikir í enska: Draumabyrjun Outtara en gömlu félagarnir unnu líka Öruggur sigur Arsenal á nýliðunum Þróttur fær tvo tíma á toppnum og Fylkir úr fallsæti Ronaldo þarf enn að bíða eftir titli þrátt fyrir tímamótamark Hjörvar fékk treyju með kveðju frá De Gea í beinni Skelfileg mistök City og fullkomin byrjun Spurs Valgeir fékk að spila og lagði strax upp í fyrsta sigrinum Sjáðu „fólkið frá þessum stað“ fagna í alvöru gæsahúðarmyndbandi Aurier í bann vegna lifrarbólgu Myndaveisla frá sögulegri stund Vestra Sjáðu markaveisluna hjá Chelsea í Austur-Lundúnum „Greenwood fékk annað tækifæri en ekki sonur minn“ Potter niðurlútur: „Ekki margt jákvætt“ „Það er æfing á morgun“ „Flottasta mark sem ég hef skorað á ferlinum“ Patrick sleit hásin og verður frá út tímabilið „Lið úr bæ þar sem eru fleiri fiskar og kindur en fólk“ Uppgjörið: Valur - Vestri 0-1 | Vestri bikarmeistari í fyrsta sinn Chelsea svaraði með fimm mörkum og pressan á Potter eykst Uppgjörið: Breiðablik - Tindastóll 5-0 | Blikar fóru illa með laskaða Stóla Kane með þrennu er Bayern valtaði yfir Leipzig Framlengir við City: „Ég elska Manchester“ Sjá meira