Fótbolti

Markverðirnir þurftu bara að mæta á æfingu í morgun

Óskar Ófeigur Jónsson í Tampere skrifar
Guðmundur Hreiðarsson, markvarðarþjálfari á æfingu með Þóru Helgadóttur og Söndru Sigurðardóttur.
Guðmundur Hreiðarsson, markvarðarþjálfari á æfingu með Þóru Helgadóttur og Söndru Sigurðardóttur. Mynd/Ossi Ahola

Sigurður Ragnar Eyjólfsson, kvennalandsliðsþjálfari gaf útileikmönnum íslenska landsliðsins frí á æfingu liðsins í morgun og það voru því bara markverðirnir og þrír skotmenn sem fóru á æfingasvæðið á meðan hinir sextán leikmenn liðsins fengu frjálsan tíma. 

Guðmundur Hreiðarsson, markmannsþjálfari, fór með þær Þóru Helgdóttur, Guðbjörgu Gunnarsdóttur og Söndu Sigurðardóttur á æfingu á Hervanta-vellinum.  Útileikmennirnir Rakel Logadóttir, Guðný Björk Óðinsdóttir og Ásta Árnadóttir fóru með á æfingu og höfðu það hlutverk að skjóta á markmennina.

Íslenska kvennalandsliðið mætir Heims- og Evrópumeisturum Þjóðverja á morgun og það má búast við því að það verði mikið að gera hjá markverði íslenska liðsins í leiknum. Hvort það kalli á meiri undirbúning eða hvort Sigurður Ragnar sé enn að velja markvörðinn í leiknum er ekki gott að segja.

Síðasta æfing íslenska liðsins fyrir leikinn verður síðan seinna í kvöld og þá mætir allt liðið á æfinguna. Leikurinn við Þýskaland fer fram í Tampere líkt og leikurinn við Frakkland og hefst á morgun klukkan 13.00 að íslenskum tíma.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×