Erlent

Skotárás í ræktinni

Að minnsta kosti fimm eru látnir eftir að maður hóf skothríð í líkamsræktarstöð í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum í nótt. Tíu eru særðir í það minnsta, en byssumaðurinn skaut sjálfan sig til bana að árásinni lokinni.

Ekki er vitað hvað manninum gekk til en sjónarvottar segja að hann hafi farið inn í danstíma sem aðeins var ætlaður konum, slökkt ljósin í salnum og hafið skothríð með tveimur byssum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×