Erlent

Líkamsræktarmorðinginn ætlaði að drepa í janúar

Georg Sodini var tæplega fimmtugur þegar hann myrti þrjár konur og særði tíu aðrar.
Georg Sodini var tæplega fimmtugur þegar hann myrti þrjár konur og særði tíu aðrar.

Morðinginn George Sodini, sem fór inn í líkamsræktarstöðin LA Gym og mytri þrjár konur auk þess sem hann særði tíu aðrar í Bandaríkjunum, bloggaði um ætlun sína að myrða fólk. Þar segist hann hafa áður farið vopnaður í þeim tilgangi að myrða.

Hann hélt úti bloggi þar sem hann virðist hafa fengið útrás fyrir skapraun sína en hann virðist ekki hafa geta mynda náin tengsl við konur.

Í einu blogginu furðar hann sig á því að hann geti ekki fundið eina konu af þeim þrjátíu milljónum kvenna sem hann taldi ákjósanlegar.

Yfirvöld í Bandaríkjunum hafa lokað fyrir bloggsíðuna hans en í á BBC kemur fram að ein færslan hafi sýnt fram á að hann hafi áður farið vopnaður í þeim tilgangi að myrða.

Dagetningin á færslunni er frá 6. janúar síðaðstliðinn. Þar skrifaði hann: „Klukkan er 20:45: Ég guggnaði! Ég tók með mér hlaðna byssu og allt. Andskotinn!"

Sodini virðist hafa skipulagt morðæðið síðan í nóvember á síðasta ári.

Konurnar þrjár sem létu lífið voru á fertugs- og fimmtugsaldrinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×