Þrjú rauð spjöld á ÍA sem tapaði á KR-vellinum Elvar Geir Magnússon skrifar 30. júní 2008 19:15
KR vann 2-0 sigur á ÍA í Landsbankadeildinni í kvöld. Garðar Örn Hinriksson dómari gaf Skagamönnum þrjú rauð spjöld, þar á meðal þjálfaranum Guðjóni Þórðarsyni. KR-ingar eru í þriðja sæti deildarinnar en Skagamenn eru hinsvegar í erfiðri stöðu í næstneðsta sæti. KR komst yfir eftir um hálftíma leik. Eftir mikinn darraðardans á línu Skagamanna var dæmt mark. Ekki var hægt að sjá hvort þetta væri mark eða ekki eða hver hefði skorað það. Eftir því sem best er hægt að sjá í sjónvarpi var það Grétar Sigfinnur Sigurðsson. Margir héldu að þetta væri ekki mark en aðstoðardómari flaggaði að boltinn hefði farið inn fyrir línuna. Vjekoslav Svadumovic fékk síðan rauða spjaldið skömmu síðar. Svadumovic fékk fyrst gult spjald fyrir að sparka í markvörð KR er hann sparkaði frá marki sínu. Svadumovic mótmælti og fékk annað gult og þar með rautt. Guðjón Þórðarson fékk síðan brottvísun í hálfleik og á 62. mínútu innsiglaði KR sigurinn. Pétur Marteinsson skallaði, markvörður ÍA hélt ekki boltanum er hann varði og Björgólfur Takefusa tók frákastið og skoraði af stuttu færi. Sjötti leikurinn í röð sem Björgófur skorar í. Bjarni Guðjónsson fékk síðan að líta rauða spjaldið hjá Garðari Erni fyrir sitt annað gula spjald á 69. mínútu. ÍA kláraði því leikinn tveimur mönnum færri. Fylgst var með leiknum á Boltavakt Vísis og Fréttablaðsins. KR - ÍA 2-0 (leik lokið) Breiðablik - Keflavík 2-2 (leik lokið)
Pepsi Max-deild karla Mest lesið „Ég fór einn inn í búningsklefa og grét“ Fótbolti Brasilía og Marokkó áfram en Skotar þurfa bíða Fótbolti Sögulegt afrek Suður-Afríku en Mexíkó fagnaði sérstaklega einni skiptingu Fótbolti „Ég held að við séum á heimleið“ Fótbolti Ganverskur drengur fer á kostum með enskum landsliðsmönnum Fótbolti Manchester City þarf að slá met til að klófesta Anderson Enski boltinn Martraðarvítaspyrnukeppni og lærisveinar Sigga Ragga úr leik Fótbolti Hefur komið Eiði Smára skemmtilega á óvart við HM Fótbolti Stjörnur framtíðarinnar og risaleikur Íslenski boltinn „VAR fór í kaffi“ til að hjálpa „heppnum“ Englendingum Fótbolti Fleiri fréttir Stjörnur framtíðarinnar og risaleikur Orðrómur um Val borinn undir Eið Smára í beinni „Eru allir í bústað klukkan sex á sunnudegi?“ „Það er stórt“ að skáka Eiði Smára Baldur baunar á Birni Snæ og hans lélega „attitjúd“ Sjáðu átta marka veislu í Vesturbænum Uppgjörið: KR - ÍA 5-3 | Átta marka súpa á Meistaravöllum Birna með þrennu þegar Stjarnan lagði Fram í Garðabæ Blikar aftur á toppinn eftir öruggan sigur í Eyjum Fyrsti sigur deildarinnar kominn í hús Einum mánuði yngri en Eiður Smári Sjáðu þrennu Elíasar, mark þess nýfermda og svar Eyjamanna Stuðningsmenn Blika og Víkinga spyrja fyrir hverja leikurinn sé Uppgjörið: Víkingur - Fram 5-0 | Elías Már með þrennu í stórsigri Víkings í toppslagnum Uppgjörið og viðtöl: Breiðablik - KA 3-1| Mikilvægur sigur Blika en vandræði KA halda áfram Stál í stál í toppslag á Meistaravöllum Efstu lið lentu í kröppum dansi en sigldu heim sigrum Uppgjörið og viðtöl: FH - Þór Ak. 1-1| Úrslit sem gera lítið fyrir bæði lið í fallbaráttunni Uppgjör og viðtöl: Valur – Keflavík 1-1 | Tvö lið sem lengir eftir sigri Uppgjörið: ÍBV-Stjarnan 2-1| Endurkomusigur Eyjamanna og uppskerubrestur Stjörnunnar Dean Martin kveður ÍA og tekur við liði í Óman Markaveisla og varamenn gerðu sig gildandi í Breiðholti Vestri í toppbaráttu eftir afar sætan sigur Má ekki spila en hjálpar til við met: „Frekar skrýtið að horfa á þessa leiki“ Njarðvíkingar stöðvuðu sigurgöngu Leiknisliðsins Birtir myndband af því þegar fyrirliði KR brotnaði á báðum Sumarmótin: TM mótið í Vestmannaeyjum Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík-Stjarnan 2-1 | Ása Björg hetjan í framlengingu Mollee: „Ég hef fulla trú á liðinu“ Þróttur og Fram fengu heimaleik í undanúrslitunum Sjá meira