Tékkland, Írland eða Skotland bíður íslenska kvennalandsliðinu Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 2. október 2008 21:38 Ísland fagnar marki sínu í Frakklandi um liðna helgi. Mynd/Stefán
Síðustu leikirnir í undankeppni EM 2009 fóru fram í kvöld og er því ljóst hvaða andstæðing Ísland getur fengið í umspili um laust sæti á EM í Finnlandi á næsta ári. Ísland lauk sinni riðlakeppni um síðustu helgi er liðið tapaði fyrir Frökkum ytra, 2-1, og varð þar með að sætta sig við annað sætið í sínum riðli. Þau sex lið sem voru í öðru sæti sinna riðla komast áfram í umspilið auk þeirra fjögurra liða sem náðu bestum árangri í þriðja sæti sinna riðla. Og nú er ljóst hvaða tíu lið þetta eru. Þessi tíu lið verða þó ekki dregin saman af handahófi heldur ræður árangur liðanna í riðlakeppninni. Þau fjögur lið sem náðu bestum árangri í öðru sæti sinna liða mæta liðunum fjórum sem náðu bestum árangri í þriðja sætinu. Hin tvö liðin sem ganga af mætast svo innbyrðist í fimmta leiknum. Ísland er í fyrstnefnda flokkinum. Ísland er á meðal þeirra fjögurra liða sem náðu besta árangrinum í öðru sæti sinna riðla. Ísland fær þar af leiðandi veikari andstæðing í umspilinu, miðað við gengi liðanna í riðlakeppninni, en ella. Þau fjögur lið sem náðu bestum árangri í öðru sæti sinna riðla eru Úkraína, Rússland, Ísland og Ítalía. Þau fjögur lið sem náðu bestum árangri í þriðja sæti sinna riðla eru Tékkland, Skotland, Írland og Slóvenía. Holland og Spánn eru liðin sem ganga af og því þegar ljóst að þau mætast í fimmta umspilsleiknum. Leikið verður heima og að heiman. Ísland getur þó ekki mætt Slóveníu þar sem þau léku saman í riðli í undankeppninni. Ísland mun því mæta Tékklandi, Skotlandi eða Írlandi í lok mánaðarins. Þar sem Ísland er í sterkari flokknum verður fyrri leikurinn leikinn ytra en sá síðari hér heima. Fyrri leikurinn fer fram 25. eða 26. október og sá síðari 29. eða 30. október. Dregið verður í hádeginu á mánudaginn. Umspilsleikirnir: Pottur A: Úkraína, Rússland, Ísland, Ítalía. Pottur B: Tékkland, Skotland, Írland, Slóvenía. * Spánn og Holland mætast í fimmta leiknum. * Ísland getur ekki dregist gegn Slóveníu.
Fótbolti Mest lesið Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Golf FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ Íslenski boltinn Kompany hneig niður og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Hljóp lengra en nokkur annar íslenskur karlmaður hefur gert Sport Stólpagrín gert að „nasistamerki“ Fálkanna Sport „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ Körfubolti Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Handbolti Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Enski boltinn Fleiri fréttir Bayern gefur út yfirlýsingu vegna veikinda Kompany Breiðablik - FH | Meistararnir gegn buguðum silfurkonum ÍBV - Stjarnan | Geta tryggt sér bronsið Þróttur - Gri/Nja | Liðin sem léku um bikarinn Matthías í stað Viktors við hlið Sölva Kompany hneig niður og var fluttur á sjúkrahús Caroline tekur við af Donna með EM-landsliðið Er staða Alexander-Arnold innan liðsins að versna? „Manchester United er og hefur alltaf verið stærra heldur en einhver einstaklingur“ Conte þverneitar sögusögnum um samningsviðræður „Förum inn í daginn til þess að njóta“ Höttur slítur samstarfi og FHL heyrir sögunni til Fær samúð frá stjórninni vegna meiðsla KSÍ fær 300 milljónir komist stelpurnar okkar á HM FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ Gaf leikmönnum Man United frídag eftir útreiðina í Como Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Hituðu upp fyrir United-leikinn með því að bursta AC Milan Orri Steinn skoraði í Evrópudeildinni „Á morgun mun ég reima á mig takkaskóna í síðasta sinn“ Þrír Íslendingar í byrjunarliði Brann í Evrópusigri Sky Sports: Carrick mun stýra Man. Utd gegn Bournemouth Líf tilnefnd til tvennra verðlauna Matthías hættur hjá Val Vopnaðir ræningjar brutust inn á heimili fyrrum markmanns PSG Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sjá meira