Ólafur: Fylkir á heima í efri hluta deildarinnar Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 2. október 2008 17:22 Ólafur Þórðarson, nýráðinn þjálfari Fylkis.
Ólafur Þórðarson, nýráðinn þjálfari Fylkis, segir að liðið hafi ollið vonbrigðum á nýliðnu tímabili og félagið eigi heima í efri hluta Landsbankadeildarinnar. „Ég er mjög sáttur," sagði Ólafur í samtali við Vísi og sagði að það hefði ekki tekið langan tíma að semja við Fylkismenn. Meistaraflokksráðið fundaði í gærkvöldi og var haft samband við Ólaf í kjölfarið. „Það var fljótgert að ræða þetta," sagði hann. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem hann er ráðinn þjálfari Fylkis en hann hóf þjálfaraferil sinn þar haustið 1997. Hann stýrði svo liðinu í næstefstu deild tímabilin 1998 og 1999 áður en hann fór til ÍA um haustið 1999. Undir hans stjórn vann Fylkir sér sæti í efstu deild og hefur undanfarin níu tímabil verið deild þeirra bestu. Besti árangurinn náðist árin 2000 og 2002 er liðið var í öðru sæti en sá versti nú í sumar, er Fylkir hafnaði í tíunda sæti. „Þetta er ósköp einfalt," sagði Ólafur. „Þessi árangur var langt fyrir neðan væntingar Fylkismanna. Þess vegna er þessi staða uppi nú. Þess vegna hafa þessi þjálfara skipti átt sér stað." Á þessum níu tímabilum í efstu deild hafa fimm þjálfarar stýrt liðinu og enginn staldrað lengur en Leifur Garðarsson sem var sagt upp störfum nú í sumar eftir tveggja og hálfs árs veru hjá félaginu. „Þetta var nú í annað skiptið á síðustu þremur árum sem liðið endar talsvert neðarlega í deildinni en ég tel að Fylkr á að vera hærra í töflunni en það. Fylkir á heima í efri hluta deildarinnar, það er ekki spurning." Hann segir að einhverjar breytingar verði á leikmannahópi Fylkis. „Þær verða einhverjar en ekki miklar. Auðvitað óttast maður að missa einhverja menn en það er mjög mikilvægt að halda í ákveðna pósta í liðinu, eins og markvörðinn og fleiri. Við leggjum áherslu á að ganga frá þeim málum ein fljótt og auðið er." „En það er klárt að sá leikmannahópur sem var hjá Fylki í sumar átti að ná miklu betri árangri en hann sýndi." Sem fyrr segir hóf Ólafur þjálfaraferill sinn með Fylki en fór svo til ÍA um haustið 1999. Þar var hann við stjórnvölinn í tæp sjö ár og var svo ráðinn til Fram tímabilið 2007. Hann tók sér hins vegar frí frá þjálfun í ár. „Mér fannst mótið í ár vera eitthvað það skemmtilegasta sem maður hefur séð í mörg ár. Bæði fjölgun liða í deildinni og meiri spenna á toppnum gerði það að verkum." „En það er ljóst að Fylkir var eitt af vonbrigðum sumarsins. Þeir gera sér vel grein fyrir því."
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Golf FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ Íslenski boltinn Kompany hneig niður og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Hljóp lengra en nokkur annar íslenskur karlmaður hefur gert Sport Stólpagrín gert að „nasistamerki“ Fálkanna Sport „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ Körfubolti Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Handbolti Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Enski boltinn Fleiri fréttir Breiðablik - FH | Meistararnir gegn buguðum silfurkonum ÍBV - Stjarnan | Geta tryggt sér bronsið Þróttur - Gri/Nja | Liðin sem léku um bikarinn Matthías í stað Viktors við hlið Sölva „Förum inn í daginn til þess að njóta“ Höttur slítur samstarfi og FHL heyrir sögunni til FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ „Á morgun mun ég reima á mig takkaskóna í síðasta sinn“ Líf tilnefnd til tvennra verðlauna Matthías hættur hjá Val Svona missti Aron markið sögulega Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Framlengir í Vesturbænum „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Uppgjör: Fram-ÍA 2-4 | Tvö Skagamörk í uppbótartíma Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Titillinn undir: „Farið illa með okkur í sumar“ Kristinn kveður Breiðablik: „Hlutirnir fara ekki alltaf eins og maður sér þá fyrir sér“ Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Sjáðu mörkin: KR tryggði annað sætið og fallbaráttan tók óvænta stefnu FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Keflavík - KR 2-3 | Gabríel gulltryggði annað sæti Þór - Stjarnan 3-1 | Þórsarar fyrir ofan fallstrikið eftir frábæran sigur Fjölnir fær Ívar Ingimars til starfa Uppgjörið: Valur - KA 4-1 | Brekkan brött fyrir KA Sjá meira