Jóhannes Karl virðir ákvörðun Ólafs Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 6. október 2008 14:54 Jóhannes Karl í leik með Burnley. Nordic Photos / Getty Images
Jóhannes Karl Guðjónsson virðir ákvörðun Ólafs Jóhannessonar landsliðsþjálfara sem hefur ekki valið hann í landsliðið á undanförnum mánuðum. Jóhannes Karl hefur verið tilnefndur ásamt þremur öðrum sem leikmaður septembermánaðar í ensku B-deildinni í knattspyrnu en hann leikur með Burnley og skoraði tvívegis í síðasta mánuði. Hann hefur þótt standa sig afar vel í þessum leikjum. Landsliðið mætir Hollandi og Makedóníu um næstu helgi og í næstu viku og var Jóhannes Karl ekki valinn í liðið þrátt fyrir að hann væri að standa sig vel með Burnley. „Það andar ekki köldu á milli mín og Óla. Þetta er bara hans ákvörðun og ég virði hana. Ég verð bara taka því að ég var ekki valinn," sagði Jóhannes Karl í samtali við Vísi. „Ég gef enn kost á mér í landsliðið og allt opið í þeim efnum. Ég held að Óli sé á réttri leið með landsliðið og vona innilega að þeim gangi vel í þessum tveimur leikjum - ekki veitir af í kreppunni," sagði hann í léttum dúr. Jóhannes Karl var valinn í landsliðið sem mætti Slóvakíu í mars síðastliðnum en hann afboðaði sig í þann leik. Ólafur hefur ýjað að því að það sé ástæðan fyrir því að hann hefur ekki verið valinn á ný. „Ég gaf honum mína skýringu á þessu og hann tók henni. En það er auðvitað hans ákvörðun að velja í landsliðið," sagði hann. Burnley er sem stendur í níunda sæti ensku B-deildarinnar en liðið vann fjóra af fimm leikjum sínum í september og gerði eitt jafntefli. „Þetta var mjög góður mánuður og við búnir að standa okkur allir vel sem lið. Það var auðvitað gaman að skora í tveimur leikjum í röð og það mátti litlu muna að þrijða markið kæmi í næsta leik." Jóhannes Karl hefur nú unnið sér fast sæti í byrjunarliðinu en hann átti fremur erfitt uppdráttar á síðasta keppnistímabili. „Þetta er kærkomin viðurkenning og þjálfarinn hefur verið ánægður með mitt framlag. Ég vil gera allt sem í mínu valdi stendur til að halda mínu sæti." Hann segir að það sé hörð samkeppni um stöður í byrjunarliðinu. „Þjálfarinn keypti þrjá nýja miðjumenn í sumar og var ekki útlit fyrir að ég yrði hans fyrsti kostur þar sem ég var keyptur áður en hann kom til félagsins. En ég hef náð að snúa þessu í minn hag og er ánægður með það."
Mest lesið Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Fótbolti Yfirmenn Heimis teknir á teppið Fótbolti Jesus sveik lærisveininn Fótbolti Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Enski boltinn „Ronaldo er elsta frekjudolla í heimi“ Sport Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Enski boltinn Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Handbolti Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Fótbolti Fleiri fréttir Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Sjá meira