Ísland náði jafntefli á Írlandi Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 26. október 2008 15:10 Íslenska liðið fagnar marki sínu í Frakklandi í síðasta mánuði. Mynd/Stefán
Ísland gerði í dag 1-1 jafntefli við Írland í fyrri leik liðanna um laust sæti á EM í Finnlandi á næsta ári. Hólmfríður Magnúsdóttir kom Íslandi yfir strax á fyrstu mínútu leiksins en Írar jöfnuðu metin í síðari hálfleik. Þetta eru góð úrslit fyrir Ísland en liðin mætast aftur á Laugardalsvelli á fimmtudaginn. Sigur eða markalaust jafntefli dugir til að tryggja íslenska liðinu farseðilinn til Finnlands. Tvær breytingar voru gerðar á byrjunarliði Íslands fyrir leikinn frá síðasta landsleik, er Ísland tapaði 2-1 fyrir Frakklandi ytra. Þóra Helgadóttir markvörður er meidd og í hennar stað stóð María B. Ágústsdóttir í markinu. Þá tók Dóra Stefánsdóttir út leikbann í dag og Rakel Hönnudóttir kom inn í liðið. Íslenska liðið byrjaði gríðarlega vel í leiknum og skoraði strax úr sinni fyrstu sókn. Írar byrjuðu en Rakel vann fljótt boltann, brunaði upp hægri kantinn þar sem hún gaf fyrir markið. Hólmfríður Magnúsdóttir var þar mætt og skoraði gott mark. Sannkölluð óskabyrjun fyrir íslenska liðið en engin fleiri mörk voru skoruð í fyrri hálfleik. Írar voru meira með boltann en náðu að skapa sér fá færi. Besta færið fengu Írar þegar sóknarmaður liðsins slapp í gegnum íslensku vörnina en María var þá vel á verði. Rakel Hönnudóttir fékk einnig fínt skotfæri í fyrri hálfleik en skot hennar fór framhjá markinu.Bæði lið fengu sín færi í upphafi síðari hálfleiks en Írar voru enn með frumkvæðið í leiknum og uppskáru mark á 64. mínútu. Boltinn barst þá á sóknarmanninn Stephanie Curtist sem skaut að marki. Boltinn fór af Ástu Árnadóttur og í markið, framhjá Maríu markverði. Fleiri mörk litu ekki dagsins ljós í dag.
Fótbolti Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Svona missti Aron markið sögulega Fótbolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Er skrefareglan dauð í NBA? Körfubolti Fleiri fréttir Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Sjá meira