Innlent

Fyrirtæki Jónasar flutti inn efnafræði- og gróðurvörur

Jónas Ingi Ragnarsson.
Jónas Ingi Ragnarsson.

Jónas Ingi Ragnarsson, sem handtekinn var í gær í tengslum við fíkniefnaframleiðsluna í Hafnarfirði, stofnaði fyrirtækið Hjúp ehf. á síðasta ári.

Tilgangur fyrirtækisins er sagður smásala og heildsala á ýmsum varningi og þjónustu með áherslu á fjarskiptaþjónustu og rafeindabúnað. Það sem hinsvegar vekur athygli er að hliðarstarfsemi fyrirtækisins er sagður vera innflutningur og dreifing á efnafræði- og gróðurvörum.

Lögreglan vill ekkert segja til um hvort grunur sé um að fryrirtæki Jónasar hafi flutt inn tæki og tól sem notuð voru við framleiðsluna. „Ég get ekkert gefið upp um það," sagði Friðrik Smári Björgvinsson yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu aðspurður um málið.

Fyrirtækið Hjúpur ehf. var stofnað þann 1.nóvember árið 2007 og er Jónas framkvæmdarstjóri og stjórnarmaður í fyrirtækinu.

Jónas var sem kunnugt er dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir aðild sína að svokölluðu „Líkfundarmáli" á Neskaupsstað. Í fyrrgreindri lýsingu á fyrirtæki Jónasar er önnur starfsemi fyrirtækisins einnig sögð felast í rekstri fasteigna og farartækja, ásamt lánastarfsemi.

Tindur Jónsson sem einnig var handtekinn í gær í tengslum við fíkniefnaframleiðsluna var á Kvíabryggju með Jónasi Inga en Tindur hlaut sex ára fangelsisdóm fyrir sveðjuárás í Garðabæ árið 2005. Tindur sem nýlega hlaut reynslulausn stundaði nám í efnafræði við Háskóla Íslands, og þótti samkvæmt heimildum Vísis, afburðarnemandi í faginu. Tindur átti um þúsund daga eftir af reynslulausn sinni.

Jónas Ingi og Tindur hafa báðir verið úrskurðaðir í tveggja vikna gæsluvarðhald en tveir aðrir hafa einnig verið handteknir vegna málsins. Öðrum þeirra var sleppt strax í gær en ekki hefur verið tekin ákvörðun um gæsluvarðhald yfir hinum.

Lögreglan hefur boðað til blaðamannafundur klukkan 14:00 í dag þar sem farið verður yfir málið ásamt sérfræðingum frá Europol.












Tengdar fréttir

Fjórði maðurinn enn í haldi lögreglu

Fjórði maðurinn, sem handtekinn var í tengslum við fíkniefnaframleiðslu í Hafnarfirði í dag, er enn í haldi lögreglu. Friðrik Smári Björgvinsson, yfirlögregluþjónn hjá rannsóknardeild lögreglunnar á

Tveir á reynslulausn á meðal hinna handteknu

Líkt og Vísir hefur greint frá hefur lögreglan handtekið fjóra karlmenn í tengslum við fíkniefnaframleiðsluna í Hafnarfirði. Þrír hinna handteknu, sem allir eru íslendingar, eru á þrítugsaldri og einn á fertugsaldri.

Amfetamínframleiðsla upprætt í Hafnarfirði

Lögregla hefur komið upp um amfetamínframleiðslu í húsi á höfuðborgarsvæðinu eftir því sem heimildir Vísis herma. Lögregla hefur boðað til blaðamannafundar vegna málsins klukkan 16 en þetta mun vera í fyrsta skipti sem slík framleiðsla er upprætt hér á landi.

Tveir úrskurðaðir í gæsluvarðhald

Tveir karlar hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 30. október í tengslum við rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á ætlaðri framleiðslu fíkniefna í Hafnarfirði.

Hefði dugað í rúmt tonn af efni

Lögreglan réðst í morgun til inngöngu í eiturlyfjaverksmiðju í iðnaðarhverfi í Hafnarfirði. Hald var lagt á háþróuð tæki til fíkniefnaframleiðslu, efni sem talið er að sé amfetamín, ríflega 20 kíló af hassi og efni til framleiðslu. Þar á meðal tonn af mjólkursykri.

Búið að handtaka fjórða manninn

Lögreglan var rétt í þessu að handtaka fjórða manninn í tengslum við fíkniefnaframleiðslu við Rauðhellu í Hafnarfirði. Þrír menn voru handteknir í morgun og sá fjórði á Keflavíkurflugvelli. Sá var að koma með flugi til landsins og er Íslendingur. Hann er á þrítugsaldri og hefur komið við sögu lögreglu áður líkt og hinir þrír.

Gæsluvarðhaldskrafa yfir fíkniefnaframleiðendum ræðst í dag

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu ákveður í dag hvort krafist verður gæsluvarðhaldsúrskurðar yfir tveimur af fjórum mönnum, sem handteknir voru í gær þegar lögregla afhjúpaði umfangsmikla fíkniefnaframleiðslu í iðnaðarhúsi í Hafnarfirði í gær.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×