Mijatovic staðfestir ráðningu Ramos 9. desember 2008 13:59 Fyrsta verkefni Ramos verður að stýra Real gegn Eiði Smára og félögum í Barcelona í El Clásico um helgina NordicPhotos/GettyImages
Predrag Mijatovic framkvæmdastjóri Real Madrid hefur staðfest fréttir spænskra miðla eftir hádegið þar sem fram kom að Juande Ramos hefði verið fenginn til að taka við starfi Bernd Schuster þjálfara liðsins sem var rekinn í dag. Real Madrid hefur ekki gengið vel í deildinni upp á síðkastið og þar hafa leikbönn og mikil meiðsli í herbúðum liðsins reyndar ekki hjálpað til. Real er í fimmta sæti spænsku deildarinnar eftir 4-3 tap fyrir Sevilla á sunnudaginn og er níu stigum á eftir toppliði Barcelona. Real og Barcelona mætast í El Clásico um næstu helgi og hafði Schuster þegar lýst því yfir að hans menn ættu litla möguleika á sigri - sem hefur eflaust ekki farið vel í stjórn Real. "Barcelona er á rosalegu flugi núna. Ég held að þetta sé þeirra ár. Ég mun reyna að setja á svið sýningu fyrir áhorfendur, en ég er hræddur um að ég geti ekki gert mikið meira en það," sagði Þjóðverjinn á blaðamannafundi. Juande Ramos kemur ekki á sérstöku flugi inn í sjóðheitan þjálfarastólinn hjá Real, því undir hans stjórn átti Tottenham verstu byrjun í sögu félagsins í haust. Samningur Ramos við Real er aðeins til sex mánaða með möguleika á framlengingu í júní á næsta ári."Þetta er draumur allra þjálfara. Real Madrid getur unnið á hvaða velli sem er í heiminum," sagði Ramos á blaðamannafundi í dag. Tottenham varð deildabikarmeistari undir hans stjórn í febrúar á þessu ári, en hafði síðan aðeins unnið 6 af 26 leikjum í öllum keppnum.Ramos komst til metorða hjá Sevilla þar sem hann tók við árið 2005, en á þeim tveimur árum sem hann stýrði liðinu vann það fimm bikara - þar af Evrópubikar félagsliða tvö ár í röð.
Enski boltinn Mest lesið Féll úr skíðalyftu og lést Fótbolti Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Íslenski boltinn Var frústreraður vegna landsliðsins Fótbolti Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Íslenski boltinn Síðasti dansinn hjá Kelce? Sport Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Enski boltinn Dreymir enn um Evrópu: „Ekki tilbúin að borga það sama“ Sport Stefndi á ÓL en fannst látinn á hótelherbergi Sport Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Enski boltinn Ruglaðar lokamínútur í Afríkukeppninni Fótbolti Fleiri fréttir Hótað brottrekstri ef hann færi ekki á börurnar Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Féll úr skíðalyftu og lést Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Var frústreraður vegna landsliðsins Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Mahrez batt enda á bið Alsíringa Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Ruglaðar lokamínútur í Afríkukeppninni Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Viðurkenna að VAR hafi bilað Úr Bestu heim í Hauka „Þetta er stærsti klúbbur Íslands“ Kaupmannahafnarbúi afgreiddi Úganda Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City Iwobi og Lookman áberandi í sigri Nígeríu „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Amanda hætt hjá Twente Jackson hóf Afríkumótið með látum Fullkrug leysir Origi af í Mílanó Versta tímabil Vinícius í mörg ár og samningaviðræður sigla í strand Kongóliðar byrja á sigri Glódís framlengir samninginn við Bayern Chelsea setur sig í samband við Semenyo Sjá meira