Fótbolti

Brasilía og Ítalía mætast á Emirates

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Brasilíumaðurinn Kaka leikur með AC Milan á Ítalíu.
Brasilíumaðurinn Kaka leikur með AC Milan á Ítalíu. Nordic Photos / AFP

Brasilía og Ítalía mætast í vináttulandsleik á Emirates-leikvanginum sem er heimavöllur enska úrvalsdeildarfélagsins Arsenal í Lundúnum.

Leikurinn fer fram þann 10. febrúar næstkomandi en þetta er í fjórða sinn sem Brasilía notar leikvanginn fyrir vináttulandsleik.

Peter Hill-Wood, stjórnarformaður Arsenal, lýsti yfir ánægju sinni með þetta. „Allir hjá félaginu eru hæstánægðir með að tvö af bestu landsliðum heimsins mætast á okkar velli. Við hlökkum til að taka á móti þeim og stuðningsmönnum liðanna."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×