HK úr leik eftir tap gegn Haukum Elvar Geir Magnússon skrifar 2. júlí 2008 21:01 Haukar eru komnir í átta liða úrslit.
Haukar sem leika í 1. deild unnu úrvalsdeildarlið HK 1-0 í sextán liða úrslitum VISA-bikarsins í kvöld. Hrakfarir HK halda því áfram en liðið er í botnsæti Landsbankadeildarinnar. Þetta er annað árið í röð sem Haukar ná að slá út úrvalsdeildarlið í bikarnum en í fyrra voru Framarar bráð þeirra. Denis Curic skoraði eina markið í kvöld á 84. mínútu á gervigrasvellinum á Ásvöllum. Úrvalsdeildarliðin Grindavík og Fylkir eru komin í átta liða úrslit en fimm leikir voru á dagskrá í kvöld. Þá komst 1. deildarlið Víkings Reykjavík einnig áfram með 3-0 sigri á Hamri. Víkingar reyndust of stór biti fyrir Hamar sem leikur í 2. deild. Christopher Vorenkamp, Þórhallur Hinriksson og Brynjar Orri Bjarnason skoruðu mörk Víkinga. Grindavík vann granna sína í Reyni Sandgerði 2-1 á útivelli. Grindavík komst tveimur mörkum yfir en Andri Steinn Birgisson og Jósef Kristinn Jósefsson skoruðu. Anton Ingi Sigurðsson minnkaði muninn fyrir Reyni sem leikur í 2. deild. Þá heimsóttu Fylkismenn Garðinn og heimsóttu Víði. Staðan var jöfn 1-1 í hálfleik en í seinni hálfleik réð Árbæjarliðið ferðinni og vann á endanum 4-1 sigur. Kjartan Andri Baldvinsson skoraði tvö mörk og Hermann Aðalgeirsson og Kjartan Ágúst Breiðdal sitthvort markið fyrir Fylki. Mark Víðis skoraði Atli Rúnar Hólmbergsson. Staðan í leik Fjölnis og ÍBV var jöfn 1-1 eftir venjulegan leiktíma og því framlengt í Grafarvoginum. Fjölnir leikur í Landsbankadeildinni en ÍBV er í toppsæti 1. deildarinnar.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Enski boltinn Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Enski boltinn Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Enski boltinn „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Íslenski boltinn „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins „Óvíst hvar Stefan Ljubicic mun spila“ „Engin krafa frá stjórn um að ná sæti í Evrópukeppni“ Leik lokið: Víkingur-Fram 2-2 | Víkingar rétt sluppu við súra sigurhátíð Óskar Hrafn: „Krefst þess að menn séu ekki saddir“ Lárus Orri hættur með ÍA og Heimir sagður á leiðinni Sjá meira