Botnliðin leika Valsmenn grátt Elvar Geir Magnússon skrifar 1. september 2008 07:00 ÍA heldur enn í vonina um að halda sér uppi „
Þetta er alveg grátlegt. Það er eins og töfluröðin taki okkur alveg úr sambandi. Skagamenn komu hingað til að spila fyrir stoltið í dag og börðust meira og uppskáru eftir því," sagði Willum Þór Þórsson, þjálfari Vals, eftir að liðið tapaði fyrir ÍA á heimavelli sínum í gær. Valsmenn hafa þrívegis í sumar tapað fyrir neðsta liði deildarinnar og aðeins fengið eitt stig úr viðureignum sínum gegn HK og ÍA. Hlíðarendapiltar náðu sér ekki á strik í gær og var fyrri hálfleikurinn sérstaklega slakur. „Þetta skánaði í seinni hálfleik og við vorum staðráðnir í því að berjast. Við unnum fleiri návígi og þá fengum við færi sem við nýttum þó ekki," sagði Willum. Skagamenn höfðu yfirhöndina í fyrri hálfleik og komust yfir strax á þriðju mínútu þegar Arnar Gunnlaugsson sýndi hvað hann kann og skoraði frábært mark. Hann og Bjarki fengu sitt dauðafærið hvor fyrir hálfleik til að koma ÍA í tveggja marka forystu en það tókst ekki. Valsmenn voru ekki með í fyrri hálfleiknum og ógnuðu marki ÍA ekki af neinu viti. Þeir léku mun betur í seinni hálfleiknum og vildu í tvígang fá vítaspyrnu en Þorvaldur Árnason dæmdi ekkert við mikla gremju Valsmanna. Hornspyrnur Vals voru stórhættulegar í seinni hálfleik en ekki fundu þeir leið framhjá Trausta Sigurbjörnssyni sem átti mjög góðan leik í marki ÍA. Fyrir framan Trausta léku varnarmennirnir fjórir allir vel en það hefur ekki gerst oft í sumar. Von Skagamanna um að bjarga sér frá falli er enn til staðar þótt veik sé. Fimm stig eru upp úr fallsæti fyrir þá gulu. „Já, reiknimeistararnir verða að segja til um það. Þetta kemur allt í ljós," sagði Kári Steinn Reynisson, sem átti frábæran leik í bakverðinum. „Það vantaði púður í þá og þeir ógnuðu lítið. Við áttum að vera búnir að gera út um þetta í fyrri hálfleik þegar við fengum dauðafæri til að bæta við. Þeir pressuðu nokkuð mikið í síðari hluta seinni hálfleiks," sagði Kári. Varðandi framhaldið sagði Kári að það þyrfti bara að taka einn leik fyrir í einu. „Þetta er ekkert endilega í okkar höndum svo við verðum bara að hugsa um að klára okkar leiki og sjá hverju það skilar,." sagði Kári Steinn að lokum.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Enski boltinn Hrækti á vítapunktinn og víti ÍBV fór forgörðum Íslenski boltinn „Ætla að taka frí langt fram á vetur“ Íslenski boltinn Orri hetjan í fyrsta sigrinum Fótbolti Gaf Arsenal afsvar en var hvergi sjáanlegur í sigri Fótbolti „Arna Sif spilaði eins og þrír leikmenn“ Íslenski boltinn Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Enski boltinn Uppgjör: ÍBV - Þór 0-1 | Þór lyfti sér upp úr fallsvæðinu Íslenski boltinn „Draumurinn er að sjálfsögðu að ná Evrópusæti“ Íslenski boltinn „Óboðleg frammistaða í fyrri hálfleik“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Ætla að taka frí langt fram á vetur“ Hrækti á vítapunktinn og víti ÍBV fór forgörðum „Óboðleg frammistaða í fyrri hálfleik“ „Draumurinn er að sjálfsögðu að ná Evrópusæti“ Uppgjör: ÍBV - Þór 0-1 | Þór lyfti sér upp úr fallsvæðinu „Arna Sif spilaði eins og þrír leikmenn“ Uppgjörið: Breiðablik - ÍBV 1-2 | Eyjakonur upp í þriðja sætið Völsungur á lífi eftir ótrúlegt mark Þróttur - Þór/KA 0-0 | Markalaust í Laugardalnum Grótta í Bestu deild kvenna í fyrsta sinn Afturelding tryggði sig í Bestu deildina með frábærum sigri Uppgjörið: Víkingur - Grindavík/Njarðvík 3-0 | Annar sigur Víkings spyrnti liðinu frá botninum Uppgjörið: Fram - Stjarnan 3-2 | Lyftu sér upp úr fallsæti Bjarni ræðir brottförina frá Val: „Erfitt að ná alvöru stöðugleika“ Systurnar báðar með tvö mörk á Ásvöllum og KR upp í annað sætið Fylkir kláraði Gróttu undir lokin og Aron Snær með þrennu fyrir Þrótt Ræddu innkomu Eiðs Smára: „Mér finnst stórfurðulegt að Hallgrímur sé enn þá þarna“ Tókust á í beinni um atvikið umdeilda upp á Skaga Ætlar að rústa markametinu og skora 30 mörk Létu leikmenn og stjórn Stjörnunnar heyra það: „Skandall, fáránlegt og ljótt“ Sjáðu sjö marka veisluna í sigri Fram Kópavogi í gær Kom inn á fyrir KR aðeins 14 ára „Maður var aldrei alveg rólegur“ Uppgjörið: Breiðablik - Fram 3-4 | Fram kláraði dæmið í fyrri hálfleik Ágúst Orri mættur í hollensku úrvalsdeildina Hræðileg nýting Blika í hornum: „Eins og þetta sé ekkert æft“ „Fæ skítinn í fangið strax frá fyrsta degi“ Átta marka veisla í fyrsta leik Eiðs Smára og Víkingsvélin mallar áfram Uppgjörið: Víkingur - Valur 2-0 | Frábærar tíu mínútur voru nóg í Víkinni Kvaddi stuðningsmenn Víkings: „Það er hluti af mér núna“ Sjá meira