Sverrir tekur við Fylki Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 29. ágúst 2008 13:41 Sverrir Sverisson lék með Fylki á árum áður.
Sverrir Sverrisson mun stýra Fylki út leiktíðina en þetta staðfesti hann í samtali við Vísi nú rétt í þessu. Sverrir tekur við af Leifi Garðarssyni sem var sagt upp störfum sem þjálfari Fylkis í gær. Fylkir tapaði fyrir KR í fyrrakvöld, 2-0, og mætir Fjölni í undanúrslitum bikarkeppninnar á sunnudaginn. „Mér líst mjög vel á verkefnið sem er framundan. Þetta verður spennandi og krefjandi en við erum bara að hugsa um að klára tímabilið eins vel og hægt er," sagði Sverrir. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem hann tekur við liðinu en hann stýrði Fylki í síðustu tveimur leikjunum leiktíðina 2005 eftir að Þorláki Árnasyni var sagt upp störfum. Síðar um haustið var svo Leifur ráðinn. „Ég hef fylgst vel með öllum heimaleikjum Fylkis í sumar enda bý ég rétt hjá vellinum. Ég er enn harður Fylkismaður en það allra mikilvægasta nú er að tryggja liðinu áframhaldandi sæti í efstu deild. Það er fyrir öllu." Sverrir lék með Fylki frá árunum 2000 til 2003 og þekkir vel til í herbúðum liðsins. Hann er bróðir Eyjólfs Sverrissonar fyrrum landsliðsþjálfara en hann segir að ekki hafi komið til greina nú að fá hann með sér í starfið. Hann sagði að hann myndi gera breytingar á Fylkisliðinu fyrir næsta leik. „Það verða breytingar, það er alveg öruggt. Hversu miklar er ekki ljóst en við munum taka einn leik fyrir í einu. Ég fæ reyndar ekki langan tíma til að undirbúa liðið fyrir næsta leik en eftir hann fáum við langt frá og þá mun okkur gefast tækifæri til að þjappa okkur saman."
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Þóra grætur í koddann ef Þorsteinn verður áfram með liðið Fótbolti Segir dóttur sína hafa gert mistök með því að velja íslenska landsliðið Fótbolti Mátti ekki kaupa íbúð Babe Ruth Sport Dagskráin í dag: Golf og aftur golf Sport Hneig niður tvisvar á risamóti í golfi Golf „Þetta snýst ekki bara um Sveindísi og Karólínu“ Fótbolti Viðurkenndi sök og má ekki keppa í CrossFit í fjögur ár Sport Wenger á allt annarri skoðun en Klopp Fótbolti Jordan Henderson snýr aftur í ensku úrvalsdeildina Enski boltinn Danska þjóðin í áfalli: „Verra en okkar versta martröð“ Sport Fleiri fréttir „Við erum að gera eitthvað rétt“ Á góðum stað fyrir mikil átök Safna stuðningsfólki í fría rútu með fljótandi veigar Shaina boðin hjartanlega velkomin aftur í Hamingjuna Sólarbann, freistingar og kokhraustir Albanir Óli Jóh skellihló að viðtali Heimis Stúkumenn ekki sammála um hvort Valsmenn geti orðið meistarar KA fékk færri athugasemdir en Crystal Palace Sjáðu Árna bjarga sjálfum sér en fá svo á sig jöfnunarmark langt utan af velli Uppgjörið: FH - Stjarnan 1-1 | Jafntefli vonbrigði fyrir alla Sjáðu Hallgrím Mar klára KR-ingana á fjórum mínútum „Ekki komnir á þann stað að geta tekið leiki og klárað þá“ Uppgjörið: KR - KA 1-2 | KA úr fallsæti „Búnir að vera á smá hrakhólum“ Uppgjörið: ÍBV - Víkingur 0-0 | Hundleiðinlegt í Eyjum Hundur vildi prófa nýja gervigrasið og fór inn á völlinn í Eyjum Uppgjörið: ÍA - Fram 0-1 | Vuk heldur áfram að skora Uppgjörið: Vestri - Valur 0-2 | Valur heldur pressu á Víkingum ÍR á toppinn en fjögur rauð spjöld og allt vitlaust í lokin Allison með fyrsta markið á nýjum Hásteinsvelli Mæta Víkingum á nýlögðu gervigrasi í Eyjum Ásgeir og Hrannar heiðruðu Jota Sjáðu glæsimark Óla Vals og öll hin í Mosfellsbæ Halldór: „Þetta er kannski lægsta orku-level sem ég hef séð hjá liðinu í sumar“ Njarðvíkingar flugu á toppinn með stórsigri í Grindavík Uppgjörið: Afturelding-Breiðablik 2-2 | Meisturum Blika fataðist flugið Þróttarar breyttu tapi í sigur með tveimur mörkum í lokin Fær tveggja leikja bann fyrir hártogið Varð fullorðinn úti „Reisn“ yfir ákvörðun Jóns Daða sem gaf stórliðunum langt nef Sjá meira