Ræði við Eið Smára þegar nær dregur 29. október 2008 14:20 Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari Mynd/E. Stefán
Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari segir ekki tímabært að segja til um hvort Eiður Smári Guðjohnsen taki þátt í æfingaleiknum gegn Möltu í næsta mánuði. Í samtali við Morgunblaðið í dag sagðist Eiður Smári ekki sjá fram á að gefa kost á sér í leikinn við Möltu, en hann er nú um það bil að ná sér af meiðslum sem hann varð fyrir í landsleik Íslands og Makedóníu um miðjan mánuð. Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu mætir Möltu í vináttulandsleik ytra þann 19. nóvember næstkomandi. Vísir spurði Ólaf Jóhannesson landsliðsþjálfara út í orð Eiðs Smára og spurði hvort útséð væri með að Eiður tæki þátt í leiknum. "Ég er búinn að ræða við hluta af mínum leikmönnum um Möltuleikinn en það hefur engin ákvörðun verið tekin um það hverjir taka þátt í honum og hverjir ekki, enda er ég ekki búinn að velja hópinn. Ég vil auðvitað fá mitt sterkasta lið í alla leiki en það er margt sem þarf að taka með í reikninginn eins og meiðsli og leikjaálag," sagði Ólafur í samtali við Vísi. En hvað finnst Ólafi um orð Eiðs Smára í Morgunblaðinu þar sem hann segist ekki sjá fram á að gefa kost á sér í næsta æfingalandsleik? "Ég hef svo sem ekkert um það að segja. Ég hef ekki rætt við hann um það. Æfingaleikir eru auðvitað æfingaleikir - en þeir eru nauðsynlegir engu að síður. Ég hef svo sem ekkert um þessa yfirlýsingu að segja, hann hefur ekki sagt mér þetta," sagði Ólafur. "Maður þarf auðvitað að taka tillit til manna sem hafa kannski verið meiddir eða ekki fengið að spila marga leiki og ég kem til með að gera það. Eiður Smári er auðvitað búinn að vera meiddur og því er kannski erfitt fyrir hann að segja til um hvort hann verði í standi til að spila eftir þrjár vikur. Ég tek á því og ræði við hann þegar að því kemur," sagði Ólafur. Ísland og Malta mættust síðast á æfingamóti á Möltu í febrúar á þessu ári, en þar höfðu heimamenn betur 1-0.
Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Svona missti Aron markið sögulega Fótbolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Er skrefareglan dauð í NBA? Körfubolti Fleiri fréttir Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM Sjá meira