Rússar hvattir til að láta af ásökunum 7. ágúst 2007 23:15 Forseti Georgíu, Mikael Sjakasvílí, virðir fyrir sér verksumerki í dag. Fyrir aftan hann sjást leyfar flugskeytisins. MYND/Getty
Bandarísk yfirvöld hafa hvatt Rússa til þess að draga úr ásökunum sínum í garð Georgíumanna í kjölfar þess að flugskeyti var skotið á smábæ í Georgíu síðastliðinn mánudag. Georgíumenn hafa fullyrt að flugskeytinu hafi verið skotið úr rússneskri herþotu en Rússar hafa sakað Georgíumenn um að hafa sjálfir skotið flugskeytinu í því augnamiði að valda spennu á milli ríkjanna. Aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna sem fer með málefni Austur Evrópu, Matt Bryza, sagði í kvöld að Bandaríkjamenn væru enn að reyna að komast á snoðir um hvað gerðist. Hann sagði ennfremur engar sannanir fyrir því að Georgíumenn stæðu sjálfir á bak við árásina og hvatti Rússa til að láta af ásökunum af því taginu. Flugskeytið lenti á akri fyrir utan bæinn án þess að springa. „Við fordæmum allar árásir á landsvæði Georgíu," sagði Bryza á blaðamannafundi í kvöld. „Við getum ekkert sagt um hver gerði hvað á þessu stigi málsins en það er ekkert sem bendir til þess að Georgíumenn hafi sjálfir verið hér að verki." Í mars síðastliðinn átti svipað atvik sér stað í Georgíu og þá sökuðu Georgíumenn Rússa um að vera valdir að árásinni. Þá, eins og nú svöruðu Rússar fyrir sig og fullyrtu að heimamenn hefðu sjálfir verið að verki. Ríkin tvö, sem áður tilheyrðu Sovétríkjunum deila hart um málefni Suður Ossetíu, héraðs í Georgíu sem sækist eftir sjálfstæði og Rússar styðja.
Mest lesið Stoltur faðir fegurðardrottningar gekk frá Gleðigöngunni með óbragð í munni Innlent Tólf milljónir í segulómtæki sem dró að sér skúringabúnað Innlent Ellefu ára hetja bjargaði systur sinni frá drukknun Innlent Margföld aðsókn í vökvagjöf: „Fólk er ekkert að gera þetta að gamni sínu“ Innlent Sendur til Íslands eftir þrætu um persónuupplýsingar innflytjenda Erlent Komnir djúpt gegnum línu Úkraínumanna Erlent Barinn við barinn en gerandinn farinn Innlent Áslaug Sigríður Alfreðsdóttir er látin Innlent Telur enn mögulegt að ná samkomulagi Innlent B sé ekki best Innlent Fleiri fréttir Sendir frá Norður-Kóreu í „þrældóm“ í Rússlandi Greta Thunberg siglir á ný til Gasa Skoða að stofna viðbragðssveit gegn uppþotum í Bandaríkjunum Hernumin héruð horfi fram á þjóðernishreinsun Vara við afleiðingum samsæriskenninga eftir skotárás á heilbrigðisstofnun Komnir djúpt gegnum línu Úkraínumanna Smyglaði 850 skjaldbökum í sokkum frá Bandaríkjunum Albanese segir Netanyahu í afneitun Sendur til Íslands eftir þrætu um persónuupplýsingar innflytjenda Leiðtogar Evrópu ítreka sjálfsákvörðunarrétt Úkraínumanna Einn látinn og tíu slasaðir eftir stóra sprengingu „Þetta er í rauninni þreifingafundur“ Ákvörðun Trump valdabrölt: „Það á eftir að verða meira svona“ Kínverskt skip stórskemmt eftir árekstur við tundurspilli Neitar að birta dómsskjöl og gagnrýnir Trump-liða fyrir blekkingarleik Fordæmir dráp á blaðamönnum og vill sjá valkyrjur stíga harðar fram Sagður slaka á kröfum og útiloka ekki landsvæðaskipti Buðu ferðamönnum upp á „stjarnferðalag“ með heimablönduðu froskaeitri Sigar þjóðvarðliðum á götur Washington og setur lögregluna á sitt vald Ákæra stjórnendur flutningaskips vegna skemmda á sæstreng Sagður hafa unnið fyrir fjölmiðlateymi Hamas áður en stríðið hófst Fordæma „markviss“ dráp Ísraela á blaðamönnum á Gasa Boðar aðgerðir í þágu öryggis og fegrunar Washington D.C. Heimila sölu gervigreindar örflaga til Kína gegn hluta af ágóðanum Eyðilegging eftir skjálfta í Tyrklandi Ástralir hyggjast viðurkenna sjálfstæða Palestínu Drápu tvo blaðamenn og tvo tökumenn vísvitandi Sæti Artúrs logar Fundur Selenskí, Pútíns og Trump á næsta leiti Stór skjálfti reið yfir í Tyrklandi Sjá meira