Ingibjörg Sólrún hitti Abbas í morgun 19. júlí 2007 12:09
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra, hitti Abbas forseta Palestínu á fundi á Vesturbakkanum í morgun. Abbas tilkynnti í gær að hann hygðist boða til þing- og forsetakosninga innan skamms. Ingibjörg Sólrún hitti Abbas á Vesturbakkanum klukkan níu í morgun að íslenskum tíma. Fundurinn var ekki langur en dagskrá Ingibjargar er nokkuð þétt í dag. Opinber heimsókn hennar til Ísraels og Palestínu hófst á mánudaginn og hefur hún meðal annars hitt Simon Peres forseta Ísraels. Ingibjörg sagði eftir fundinn í morgun að alþjóðasamfélagið hefði hlutverki að gegna gagnvart Palestínumönnum. Mikilvægara væri þó að Palestínumenn og Ísraelar kæmust að samkomulagi sín á milli. Í gær tilkynnti Mahmoud Abbas, forseti Palestínu, að hann ætli sér að boða til þing- og forsetakosninga innan skamms. Abbas fer fyrir bráðabirgðastjórn sem mynduð var í síðasta mánuði. Samtök Hamas hafa lýst því yfir að þau vilji ekki að kosningar verði haldnar á næstunni en samtökin sigruðu í þingkosningunum sem haldnar voru í Palestínu í fyrra. Um miðjan júní síðastliðinn var mynduð ný stjórn eftir að Hamas náði völdum á Gazasvæðinu. Forystumenn Hamas neituðu strax að viðurkenna ríkisstjórnina. Neyðarstjórnin fékk undireins góðar viðtökur hjá bæði Ísraelum og Bandaríkjamönnum sem fögnuðu henni og sögðu hana boða nýtt upphaf friðarumleitana. Bæði Evrópusambandið og Bandaríkjastjórn hófu í framahaldi beina aðstoð við bráðabrigðastjórn Abbas með fjárframlögum. Hvorugur aðilinn hafði stutt Palestínumenn fjárhagslega frá sigri Hamas í þingkosningum í janúar á síðasta ári.
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Bíði og bíði eftir Bjarna Innlent Fleiri fréttir Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Sjá meira