Höfðu mikið magn efna til sprengjugerðar undir höndum 5. september 2007 11:33
Ríkissaksóknari Þýskalands, Monika Harms, sagði í morgun að mennirnir þrír sem voru handteknir í gær grunaðir um að skipuleggja hryðjuverk hefðu hlotið þjálfun í Pakistan. Harms sagði á blaðamannafundi um málið að mennirnir hefðu haft undir höndum 680 kíló af vetnisperoxíði til sprengjugerðar. Blandað öðrum efnum hefði vetnisperoxíðið dugað í sprengju með sama kraft og 540 kíló af TNT sprengiefni. Það er mun öflugra en sprengjurnar sem sprungu í neðanjarðarlestarkerfum í London og Madríd. Mennirnir eru grunaðir um að hafa ætlað að skipuleggja hryðjuverkaárásir á flugvöllinn í Frankfurt og á herstöð bandaríkjahers í Ramstein. Flugvöllurinn í Frankfurt er einn sá fjölfarnasti í heimi. Herstöðin í Ramstein er í um 130 kílómetra fjarlægð frá vellinum, og er ein mikilvægasta herstöð Bandaríkjamanna utan heimalandsins. ,,Það eru sterkar vísbendingar til þess að Ramstein og Frankfurt-flugvöllur að minnsta kosti hafi verið möguleg skotmörk, og að stutt hafi verið í að mennirnir myndu láta til skarar skríða." sagði stjórnmálamaðurinn Wolfgang Bosbach við þýska sjónvarpsstöð. Hann bætti við að líklegt væri að árásin hefði verið áætluð 11. september, á afmæli árásarinnar á tvíburaturnana. Fyrr á þessu ári var líbanskur maður kærður fyrir tilraun til sprengjuárásar í Þýskalandi árið 2006. Hann og vitorðsmaður hans skildu tímastilltar sprengjur eftir í tveimur lestum, en þær sprungu aldrei vegna bilunar í tæknibúnaði. Þýskir hermenn eru meðal herliðs NATO í Afghanistan. Þýsk yfirvöld hafa lengi óttast að öfgahópar sæki í sig veðrið í landinu, en í Hamburg var ein af bækistöðvum hryðjuverkamannanna sem réðust á tvíburaturnana í new york þann 11. september 2001.
Mest lesið Eldur kviknaði á Völlunum Innlent Ísraelsher viðurkennir að hafa skotið fimm ára stúlku Erlent Vaxtahækkunin geti gert illt verra Innlent Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Innlent Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Innlent „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Innlent Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ Innlent Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Innlent Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Innlent Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt Innlent Fleiri fréttir Ísraelsher viðurkennir að hafa skotið fimm ára stúlku Kærastinn var á staðnum Telur sig geta sjarmað kjarnorkuvopnin af Kim, aftur Lentu geimflaug í fyrsta sinn Taka snúning á risasvartholi með hjálp skruggufljótrar stjörnu Nýtt spillingarmál skekur Kænugarð Kafari handtekinn vegna Nord Stream-skemmdarverkanna Fatlaður maður lést eftir að lögregla skaut hann með rafbyssu Fedorov kallar eftir forsetakosningum í Úkraínu Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Tilkynna refsiaðgerðir gegn háttsettum aðilum Alþjóðasakamáladómstólsins Telja Ísland geta liðkað fyrir inngöngu Svartfjallalands Stjórnarandstaðan leiðir með tíu prósentustigum í könnunum „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Grunnþjálfun hermannanna fer öll fram á Grænlandi Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Enginn árangur af fundi Kushner og Netanyahu Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Haraldur konungur lagður inn á spítala Átti í samskiptum við eftirhermu starfsmannastjóra Hvíta hússins Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Sjá meira