Lífið

Mr. Bean keyrir á

Rowan Arkinson sem þekktastur er fyrir klaufalegar hetjudáðir og óheppni Mr. Bean, lenti í umferðaróhappi þegar hann keyrði á annan bíl á skíðasvæði í Bandaríkjunum. Atkinson var að bakka út úr bílastæði í Aspen í Colorado og rakst á kyrrstæðan Volkswagen Jetta samkvæmt heimildum lögreglu.

Dan Davis lögreglumaður sagði Associated Press að stjarnan hefði ekki séð bílinn fyrir aftan sig. "Hann verður ekki kærður ," sagði Davis. Bíllinn dældaðist lítillega.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.