Fótbolti

Kári: Ég á að vera í landsliðinu

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Kári Árnason á Laugardalsvellinum fyrir leik Íslands og Lettlands í síðasta mánuði.
Kári Árnason á Laugardalsvellinum fyrir leik Íslands og Lettlands í síðasta mánuði. Mynd/E. Stefán

Kári Árnason segir í samtali við Jyllandsposten í dag að hann sé besti varnartengiliður Ísland og að hann eigi heima í landsliðinu.

Kári var ekki valinn í fyrsta landsliðshóp Ólafs Jóhannessonar á dögunum og síðan þá hefur Ólafur valið tvo miðvallarleikmenn fram yfir Kára vegna brottfalls þeirra Eiðs Smára Guðjohnsen og Jóhannesar Karls Guðjónssonar.

Kári segir í samtali við blaðið að val Ólafs hafi komið honum mjög á óvart.

„Ég hef spilað vel að undanförnu og tel víst að ég eigi að vera í landsliðinu. En þetta er að sjálfsögðu undir þjálfaranum komið," sagði hann.

Hann sagði enn fremur að hann þekki ekki Ólaf persónulega og hafi ekki rætt við hann síðan hann tók við starfi landsliðsþjálfara.

Kári segist einnig ósáttur við vinnubrögð KSÍ.

„KSÍ sendi símbréf til AGF þar sem stóð að ég hefði verið valinn í landsliðið. Síðan sá ég á heimasíðu KSÍ að ég hefði ekki verið valinn. Þetta er óskaplega áhugamannalegt af þeim."

Öllum knattspyrnusamböndum ber að tilkynna félögum að leikmaður kunni að vera valinn í landsliðið komi hann til greina. Það þarf þó ekki að þýða að viðkomandi leikmaður verði á endanum valinn í viðkomandi leikmannahóp.

Hann vandar KSÍ ekki kveðjuna.

„Í fyrsta skiptið sem ég var valinn í landsliðið datt ég aftur úr hópnum sama daginn. Ég komst að því í blöðunum daginn eftir að ég hefði verið valinn í 22ja manna hópinn en datt út þar sem aðeins 20 voru valdir á endanum. Þetta samband er greinilega ekki í hæsta gæðaflokki," sagði Kári.

Hann sagðist þó ætla að fara á leikinn í Parken sem áhorfandi og gantaðist með að hann ætlaði að fara í dönsku landsliðstreyjunni sinni.

„Nei, auðvitað held ég með Íslandi. En ég vonast til að ég verði með liðinu í undankeppni HM 2010."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×