Lífið

Eiginmaður Amy Winehouse handtekinn

Amy og eiginmaðurinn á góðum degi.
Amy og eiginmaðurinn á góðum degi. MYND/Getty
Lögregla handtók í gær Blake Fielder-Civil, eiginmann Amy Winehouse. Hann er grunaður um að hann hafi ætlað að múta manni sem kærði hann fyrir líkamsárás til að breyta framburði sínum fyrir dómi.

Átta óeinkennisklæddir lögreglumenn handjárnuðu Fielder-Civil og leiddu hann á brott meðan Winehouse grátbað þá um að taka sig með. Stjarnan, hágrátandi og æst, kyssti og faðmaði mann sinn ítrekað og sagði honum að það yrði allt í lagi með sig áður en hann var leiddur á brott.

Handtakan var gerð í Bow í Austur-London tíu klukkustundum eftir að lögregla braut niður framhurð á íbúð hjónanna í Camden. Dagblaðið the Mirror hafði gert lögreglu viðvart þegar þeim bárust upplýsingar um það að Fielder-Civil og vinur hans Michael Brown væru að reyna að trufla framgang máls sem höfðað var á hendur þeim fyrir líkamsárás. Upplýsingarnar bentu til að mennirnir ætluðu að múta fórnarlambinu, barþjóninum James King, til að draga framburð sinn til baka. Þá ætluðu þeir að fljúga honum úr landi fyrir réttarhöldin, sem áttu að fara fram á mánudaginn, í þeirri von að þau myndu falla um sjálf sig.

Ekki er talið að poppdívan hafi verið kunnugt um fyrirætlanir þeirra, en hún verður yfirheyrð af lögreglu.

Fielder-Civil á yfir höfði sér fangelsisdóm verði hann fundinn sekur. Móðir hans sagði í viðtali við Mirror að bæði hann og Winehouse reiknuðu með því að hann endaði í fangelsi. Winehouse sagði tengdamóðurinni þó að hún myndi styðja eiginmanninn sama hvað gerðist. Pabba stjörnunnar líst ekki illa á yfirvofandi fangelsisdóm, en hann sér eiginmann sem vandræðagemsa sem hafi leitt dóttur sína út í eiturlyfjaneyslu. ,,Ef hann færi í fangelsi væri það það besta sem gæti komið fyrir Amy. Við gætum komið henni í meðferð" sagði Mitch, pabbi Winehouse.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.