Eiginmaður Amy Winehouse handtekinn 9. nóvember 2007 14:33 Amy og eiginmaðurinn á góðum degi. MYND/Getty
Lögregla handtók í gær Blake Fielder-Civil, eiginmann Amy Winehouse. Hann er grunaður um að hann hafi ætlað að múta manni sem kærði hann fyrir líkamsárás til að breyta framburði sínum fyrir dómi. Átta óeinkennisklæddir lögreglumenn handjárnuðu Fielder-Civil og leiddu hann á brott meðan Winehouse grátbað þá um að taka sig með. Stjarnan, hágrátandi og æst, kyssti og faðmaði mann sinn ítrekað og sagði honum að það yrði allt í lagi með sig áður en hann var leiddur á brott. Handtakan var gerð í Bow í Austur-London tíu klukkustundum eftir að lögregla braut niður framhurð á íbúð hjónanna í Camden. Dagblaðið the Mirror hafði gert lögreglu viðvart þegar þeim bárust upplýsingar um það að Fielder-Civil og vinur hans Michael Brown væru að reyna að trufla framgang máls sem höfðað var á hendur þeim fyrir líkamsárás. Upplýsingarnar bentu til að mennirnir ætluðu að múta fórnarlambinu, barþjóninum James King, til að draga framburð sinn til baka. Þá ætluðu þeir að fljúga honum úr landi fyrir réttarhöldin, sem áttu að fara fram á mánudaginn, í þeirri von að þau myndu falla um sjálf sig. Ekki er talið að poppdívan hafi verið kunnugt um fyrirætlanir þeirra, en hún verður yfirheyrð af lögreglu. Fielder-Civil á yfir höfði sér fangelsisdóm verði hann fundinn sekur. Móðir hans sagði í viðtali við Mirror að bæði hann og Winehouse reiknuðu með því að hann endaði í fangelsi. Winehouse sagði tengdamóðurinni þó að hún myndi styðja eiginmanninn sama hvað gerðist. Pabba stjörnunnar líst ekki illa á yfirvofandi fangelsisdóm, en hann sér eiginmann sem vandræðagemsa sem hafi leitt dóttur sína út í eiturlyfjaneyslu. ,,Ef hann færi í fangelsi væri það það besta sem gæti komið fyrir Amy. Við gætum komið henni í meðferð" sagði Mitch, pabbi Winehouse.
Mest lesið Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum Lífið „Auðveldara hér að vera bara eins og maður er“ Tíska og hönnun Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Lífið „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Lífið Fjörður og mynd um áhrif innrásar Rússa verðlaunuð í Cannes Menning „Við erum bara tvö eftir“ Lífið „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Lífið Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Lífið Vill helst brenna myndir frá unglingsárunum Tíska og hönnun Stjúpur og fjólur það heitasta Lífið Fleiri fréttir Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins „Ógeðslega flókinn tími í lífi fólks“ Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Hvað veistu um... flugvelli? Vignir Vatnar opnar sig um sjálfsvígshugsanir Lygilega erfið þrautabraut Nemendur í Seljaskóla graffa 56 metra listaverk við skólann Fyrrverandi þingmaður selur í Laugardalnum Eyþór og Ástríður eignuðust lítinn Arnalds Þurfti hjálp við að anda og lítið var um svör Kvikmyndagerðarmenn framtíðarinnar í fíling Frumsamin kórverk í heimabruggi bílskúrsbands Ari Edwald og Ingibjörg keyptu súkkulaðihöllina Naglbíts-barn á leiðinni Sólveig Anna og Marta María léku á als oddi og Óli tottaði vindil Ívar Halldórs var týndi sonur Jóhanns G. Jóhannssonar Flúði land vegna fátæktar og atvinnuleysis Aron Can og Erna keyptu „óvart“ hús Sjá meira