Lífið

Allt fyrir ástina í forsölu á tónlist.is

Nú gefst notendum Tónlist.is tækifæri á að vera fyrstir til að eignast nýjustu Páls Óskars, Allt fyrir ástina. Platan er komin út á vefsvæðinu, en kemur ekki í verslanir fyrr en föstudaginn 9. nóvember.

Allt fyrir ástina er fyrsta dansplata Páls Óskars síðan árið 1999. Platan inniheldur m.a. titillagið sem gerði allt vitlaust í sumar á öldum ljósvakans og smellinn International. Upptökustjórn var í höndum Páls og Örlygs Smára fyrir utan 3 lög. Toggi og Bjarki eiga lögin "Partí fyrir tvo" og "Þú komst við hjartað í mér" og Svala Björgvins leggur til frábært lag, sem heitir "Komdu til mín". Trausti Haraldsson, sem m.a. gerði lögin "Bundinn fastur" og "Minn hinsti dans" með Páli, leggur til 4 lög á plötunni, og Örlygur Smári og Niclas Kings eiga einnig 4 lög. Eintakið fæst á tónlist.is fyrir aðeins 1299 kr.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.