Íslenski boltinn

U21 liðið mætir Austurríki á morgun

Elvar Geir Magnússon skrifar
U21 landslið Austurríki æfði á Leiknisvelli í Breiðholti í dag. Leikurinn á morgun mun fara fram á Grindavíkurvelli.
U21 landslið Austurríki æfði á Leiknisvelli í Breiðholti í dag. Leikurinn á morgun mun fara fram á Grindavíkurvelli. Mynd/Smyheg

Íslenska U21 landsliðið leikur á morgun fjórða leik sinn í undankeppni Evrópumótsins. Liðið tekur þá á móti toppliði riðilsins, Austurríki, en leikurinn fer fram í Grindavík og hefst klukkan 15:00.

Íslenska liðið byrjaði keppnina á því að tapa fyrir Kýpur á heimavelli en gerði síðan tvö jafntefli, gegn Slóvakíu á útivelli og Belgíu á heimavelli.

Austurríki hefur ekki tapað leik. Liðið vann Belgíu á útivelli og Kýpur á heimavelli en gerði jafntefli gegn Slóvakíu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×