Íslenski boltinn

Baldur fer ekki í atvinnumennsku

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Balur í leik með Val gegn HK í sumar.
Balur í leik með Val gegn HK í sumar. Mynd/Anton

Baldur Aðalsteinsson, leikmaður Vals, hyggst ekki reyna fyrir sér í atvinnumennsku og mun spila hér á landi næsta sumar.

Þetta staðfesti hann við Vísi en samningur hans við Val rennur út nú á næstunni. Frá og með deginum í dag er honum því heimilt að ræða við önnur lið.

„Ég hef alltaf sagt að það sé líklegast að ég spili áfram með Val en það er ekkert öruggt í þessum efnum.“

Hann segist ætla að ræða við önnur lið í Landsbankadeildinni. „Það er ekkert að því að kanna hvað önnur lið hafa að segja.“ 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×