Íslenski boltinn

Logi semur við KR í kvöld

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Logi Ólafsson stýrir KR á sinni fyrstu æfingu í sumar.
Logi Ólafsson stýrir KR á sinni fyrstu æfingu í sumar. Mynd/Valli

Logi Ólafsson mun í kvöld semja við KR til næstu þriggja ára en Logi staðfesti það í samtali við Vísi.

Hann tók við liðinu af Teiti Þórðarsyni fyrr í sumar og kom í veg fyrir að liðið félli í 1. deildina.

„Ég veit að KR er mjög góður og skemmtilegur klúbbur sem hefur átt undir högg að sækja. Þegar ég kom í sumar vissi ég að þetta yrði erfitt en ekki eins erfitt og raunin varð. En það búa miklir möguleikar í félaginu og mig langar til að taka þátt í því að endurreisa það."

Hann segir að stefna KR sé tvímælalaust sett á toppbaráttuna næsta sumar.

„Ef ég teldi að það væri ekki hægt væri ég ekki að taka þetta að mér."

Einhverjir leikmenn KR hafa gefið það út að þeir ætli nú að hætta og aðrir eru að klára samninga sína við félagið.

„Óhjákvæmilega verða einhverjar breytingar á leikmannahópnum en ég vil samt sem áður halda öllum þeim leikmönnum sem ég get."

Sigursteinn Gíslason verður áfram aðstoðarþjálfari meistaraflokks KR.

Logi neitar því ekki að það hafi lengi heillað hann að þjálfa KR.

„Ég get ekki svarað fyrir aðra en stundum hefur það verið sagt að það sé afar eftirsóknarvert fyrir knattspyrnuþjálfara á Íslandi að þjálfa einhvern tíman á sínum ferli KR. Ég get alveg tekið undir það."


Tengdar fréttir

Logi verður áfram með KR

Logi Ólafsson og KR Sport komust í gær að munnlegu samkomulagi um að hann haldi áfram þjálfun meistaraflokks KR.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×