Íslenski boltinn

Logi verður áfram með KR

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Logi Ólafsson á sinni fyrstu æfingu með KR í sumar.
Logi Ólafsson á sinni fyrstu æfingu með KR í sumar. Mynd/Rósa

Logi Ólafsson og KR Sport komust í gær að munnlegu samkomulagi um að hann haldi áfram þjálfun meistaraflokks KR.

Þetta hefur Vísir eftir afar áreiðanlegum heimildum úr innsta hring félagsins.

Talið er að tilkynnt verði á allra næstu dögum að Logi muni halda áfram með liðið. Hann tók við KR um mitt sumar eftir að Teiti Þórðarsyni var sagt upp störfum.

Undir hans stjórn náði félagið að bjarga sér frá falli á síðustu stundu. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×