Ásakanir um greftrun Madeleine 'fáránlegar' Sigríður Guðlaugsdóttir skrifar 28. september 2007 15:16 McCann hjónin á blaðamannafundi í Madrid í júní. MYND/AFP
Talsmaður McCann hjónanna vísar algjörlega á bug ásökunum portúgalskra fjölmiðla um að hjónin hafi grafið lík Madeleine í ferð sem þau fóru til Spánar þremur mánuðum eftir að stúlkan hvarf. Fréttir segja að portúgalska lögreglan sé nú að rannsaka tvo klukkutíma í ferðinni þar sem ekki er vitað um ferðir hjónanna og þau hefðu getað losað sig við lík stúlkunnar. Hjónin fóru til Huelva á Spáni 3. ágúst. Rannsóknarlögreglumenn velta því fyrir sér af hverju ferðinni var frestað frá deginum áður og af hverju ferðin til Huelva tók lengri tíma en vanalegt er. Clarence Mitchell talsmaður hjónanna var myrkur í máli þegar hann sagði Sky fréttastofunni að allar ásakanirnar í portúgölsku fjölmiðlunum væru algjörlega fáránlegar. McCann hjónin gætu ekki svarað hverri einustu ásökun sem borin væri á þau. Gerð hefði verið grein fyrir ferðum hjónanna þennan dag og fjölmiðlar hafi fylgst grannt með hjónunum. Það væri tími til kominn fyrir portúgalska fjölmiðla að láta af ásökununum á hendur hjónunum. Kate og Gerry eyddu þremur klukkustundum í Huelva umræddan dag. Þau settu upp veggspjöld af Madeleine litlu og afhentu ferðamönnum myndir af henni. Ferðinni var frestað vegna þess að Kate leið ekki vel. Hjónin segja að ferðin til Huelva hafi tekið lengri tíma en vani er vegna þess að þau hafi stoppað á bensinstöð og dreift auglýsingaspjöldum af stelpunni.
Madeleine McCann Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Innlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Fleiri fréttir Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Sakaskrá fjölda glæpamanna óvart hreinsuð Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Hefja síðasta áfanga ferðarinnar til Merkúrs Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Sjá meira