Þriðja stóra hryðjuverkamálið í Danmörku á tæpum tveimur árum Guðjón Helgason skrifar 4. september 2007 12:13
Átta menn voru handteknir í Kaupmannahöfn í nótt - grunaðir um að hafa ætlað að smíða sprengjur sem nota átti til hryðjuverkaárása í Danmörku. Mennirnir eru sagðir tengjast al Kaída. Þetta er þriðja stóra hryðjuverkamálið í Danmörku á tæpum tveimur árum. Mennirnir eru allir af erlendu bergi brotnir en sex þeirra danskir ríkisborgarar. Þeir eru á aldrinum nítján til tuttugu og átta ára. Krafist verður gæsluvarðhalds yfir minnst tveimur þeirra. Lögregla réðst til inngöngu á ellfu stöðum í Kaupmannahöfn þar á meðal í Ishøj, Avedøre og Glasvej í norð-vesturhluta Kaupmannahafnar. Vel á fjórða tug lögreglumanna tóku þátt í aðgerðunum. Grunur lék á að mennirnir væru að smíða sprengjur og því voru sprengjusérfræðingar kallaðir til. Þeir klæddust hlífðarfatnaði af ótta við það sem inn í íbúðunum væri að finna. Á blaðamannfundi í morgun sagði talsmaður dönsku leyniþjónustunnar, PET, að fylgst hefði verið með mönnunum um nokkurt skeið og þeir síðan handteknir á grundvelli hryðjuverkalaga. Þeir hafi verið grunaðir um að ætla að smíða sprengjur enda hefðu þeir sankað að sér efni til þess.Hald hafi verið lagt á ýmis efni - þar á meðal óstöðugt efni eins og það var orðað. Ekki virðist vitað hvar þeir hafi ætlað að láta til skarar skríða. Lögregla segir mennina tengjast al Kaída hryðjuverkasamtökunum. Þetta er þriðja stóra hryðjuverkamálið í Danmörku sem danska lögreglan segir merkilegt í ekki stærra landi. Fjórir menn voru handteknir í október 2005 í Glostrup og voru þeir sagðir tengjast tveimur mönnum sem höfðu hlotið dóm fyrir hryðjuverk í Bosníu. Aðeins einn fjórmenningana hlaut dóm. Sjö menn voru svo handteknir í Vollsmose í Óðinsvéum í september í fyrra grunaðir um að skipuleggja sprengjuárásir í Danmörku. Málið gegn þeim verður tekið fyrir á næstu dögum.
Mest lesið Landsmenn allir harmi slegnir Innlent Dauðbrá og varð öskureið þegar hún sá sjálfa sig í gervigreindarmyndbandi Innlent „Kannski verður maður grátandi hálft hlaupið, en þá bara er það þannig“ Innlent Tillaga um að stækka Hótel Flatey felld Innlent Sósíalistar og Rússlandsvinir undir eitt þak Innlent Fundu ríflega tuttugu lítra af brennisteinssýru í Gnoðarvogi Innlent Menntamálaráðherra greindur með þágufallssýki Innlent „Dýrlingurinn“ tekinn úr umferð en keyrir enn Innlent Stór hluti felldur niður og Shamsudin-bræður játa Innlent Mikilvægt að nota réttu orðin sem séu píka og typpi Innlent Fleiri fréttir Fella niður 64 milljarða sekt Trump Samþykktu ný hagstæðari kjördæmi í Texas Vara við hörmungum verði gert áhlaup á Gasaborg Stefna á fjöldaframleiðslu á eigin stýriflaugum Losun Kína dregst saman vegna uppgangs í sólarorku Líkamlegar refsingar hamla þroska og hafa áhættu í för með sér Handtekinn á Ítalíu vegna Nord Stream sprenginganna Rússar halda árásum áfram Ætla að stoppa farandfólk með svartri málningu Mega neita þeim aðgengi sem bera keffiyeh Hefur áhyggjur af gervigreind sem virðist sjálfsmeðvituð Engir hermenn í Úkraínu og enginn fundur með Pútín Kalla tugi þúsunda til herþjónustu Öflugasti sjónaukinn fann áður óþekkt tungl í sólkerfinu „Stríðin“ sex, stundum sjö, sem Trump segist hafa stöðvað Kirkjan í Kiruna komin á áfangastað Frambjóðandi sem ræddi um morð á hundi farinn í hundana Nýtt flaggskip Rússa á sjó eftir tuttugu og fimm ár í slipp Hondúras og Úganda samþykkja að taka við hælisleitendum Segist vilja komast til himna Ísraelar taki ekki annað í mál en lausn allra gísla Bauð Selenskí til Moskvu Segir ásakanir Evrópu barnalegar Þingmaður sagður hafa svipt sig lífi í finnska þinghúsinu „Því miður vantar ennþá ansi mikið“ Ágóði af „Waka Waka“ sagður hafa endað í vasa Shakiru Sneru aftur og er fylgt af lögreglu svo þeir flýi ekki Flytja eina frægustu kirkju Svíþjóðar um fimm kílómetra Vill vísa Thunberg frá Noregi fyrir mótmæli gegn olíuvinnslu Hafa afturkallað yfir 6.000 námsmannaleyfi Sjá meira