Hátíðarhöld hafa varpað skugga á ímynd Akureyrar 9. ágúst 2007 19:24 Frá hátíðarhöldum á Akureyri í fyrra. MYND/Hilli
Bæjarstjóri Akureyrar, Sigrún Björk Jakobsdóttir, hefur sent frá sér yfirlýsingu í kjölfar þess að bæjarstjórnin hefur verið gagnrýnd fyrir að meina ungmennum að tjalda í bænum um síðustu verslunarmannahelgi. Í yfirlýsingunni segir meðal annars að undanfarnar verslunarmannahelgar hafi fallið skuggi á þá viðleitni bæjaryfirvalda að skapa bæjarfélaginu ímynd öflugs mennta- og menningarsamfélags þegar skipulagðar skemmtanir í bænum hafi farið úr böndunum. Því hafi þurft að grípa til markvissra aðgerða. „Eftir miklar umræður um hvaða leiðir væru færar til að tryggja að skipulögð fjölskylduhátíð breyttist ekki í hamslausa útihátíð greip bæjarstjóri til þess ráðs að takmarka aðgang unglinga að tjaldsvæðum bæjarins um þessa verslunarmannahelgi," segir Sigrún Björk í yfirlýsingunni. „Ákvörðunin var tekin af illri nauðsyn en því miður var þetta eina færa leiðin til að koma böndum á ástandið sem ríkt hefur í bænum um verslunarmannahelgar undanfarin ár. Þessi ákvörðun var tekin og ég stend við hana." Bæjarstjórinn segir augljóst að aðgerðirnar hafi borið árangur og segir hún fjölda bæjarbúa hafa haft samband við bæjaryfirvöld og lýst ánægju sinni með hvernig til tókst. „ Allt annar bragur var á tjaldsvæðum bæjarins og samkvæmt upplýsingum lögreglu var mun rólegra í bænum en undanfarnar verslunarmannahelgar. Í fyrsta sinn í langan tíma var um sannkallaða fjölskylduhátíð að ræða," segir Sigrún. Hún dregur einnig í efa að tjaldbannið hafi verið ástæðan fyrir því að helmingi færri heimsóttu bæinn í ár en í fyrra, en um 6000 manns eru taldir hafa lagt leið sína til Akreyrar um verslunarmannahelgina. „Í því sambandi ber að geta þess að veðurspá fyrir landið þessa helgi var verst fyrir Norðurland og ekki er vafi á að slæmt veður hafði mikil áhrif á aðsóknina að hátíðinni. Þetta kom einnig skýrt fram í dræmri aðsókn að Síldarævintýrinu á Siglufirði," segir Sigrún. Hún bendir einnig á tölur yfir umferð um Hvalfjarðargöngin en umferð um göngin mun hafa verið fjórum prósentum minni um nýliðna helgi en sömu helgi í fyrra. „ Það er því ljóst að mun fleiri þættir en aldurstakmark á tjaldsvæðum ollu minni aðsókn að hátíðinni í ár en í fyrra." Sigrún lýkur yfirlýsingunni á sáttanótum og hvetur til þess að menn slíðri sverðin. „ Mikið hefur verið rætt um þessar ráðstafanir meðal bæjarbúa og annars staðar undanfarna daga. Nú þurfa Akureyringar hins vegar að slíðra sverðin og nota næsta árið til að ákveða hvernig standa beri að fjölskyldumhátíðum í bænum til framtíðar."
Mest lesið Vinum hans ekki litist á blikuna Innlent Kveður klettinn í lífi sínu eftir skyndileg veikindi Innlent Pétur verið lengur en hún í stjórnmálum Innlent Fluttur á sjúkrahús eftir slys í Hrútafirði Innlent Þessi fjórtán hlutu fálkaorðuna á nýársdegi Innlent Á bak við tjöldin: „Með alls konar exit plans, trúið mér“ Innlent Pétur fer á móti borgarstjóra og vill fyrsta sætið í Reykjavík Innlent Vanhelgunin ýmist skemmdarverk eða persónuleg árás Innlent Óttast að um fjörutíu hafi látist á skemmtistaðnum Erlent „Margir sem því miður eru ekki jafn heppnir og ég“ Innlent Fleiri fréttir Vinum hans ekki litist á blikuna Pétur verið lengur en hún í stjórnmálum Fluttur á sjúkrahús eftir slys í Hrútafirði Pétur fer á móti borgarstjóra og vill fyrsta sætið í Reykjavík Kveður klettinn í lífi sínu eftir skyndileg veikindi Hitnar undir feldi Péturs Þessi fjórtán hlutu fálkaorðuna á nýársdegi „Líðan barna nú mun móta sögu og styrk Íslands á næstu árum“ Fleirum þykir Flokki fólksins ganga illa að hrinda málum í framkvæmd Fimmtán leituðu á bráðamóttöku vegna flugeldaslysa Fjögurra stiga skjálfti í Bárðarbungu: „Stærsti skjálftinn á árinu“ Hvetur Íslendinga til að hafna „svartagallsrausi“ Ríflega tuttugu útköll vegna eldsvoða Vill annað sætið hjá Samfylkingunni í borginni Kveðst hlakka til að mæta aftur til starfa Á bak við tjöldin: „Með alls konar exit plans, trúið mér“ Fyrsta barn ársins kom í heiminn klukkan 00:24 Miðahafi á Íslandi vann 642 milljónir í Víkingalottói Stunguárás og margar tilkynningar um flugeldaslys Gleðilegt nýtt ár kæru lesendur Vísis Eitthvað í íslensku samfélagi fjandsamlegt börnunum okkar Simmi vinsælasti leynigesturinn „Þetta er Íslandsmet, Íslandsmet í svikum“ Tal um Ingu eftir kosningar ekki til sóma Gummi lögga er maður ársins 2025 Árangur breyti ekki alltaf upplifun fólks „Viðreisn jafnvel erfiðari viðfangs en Flokkur fólksins“ Vara við hættu á sinubruna Haldlögðu metmagn af fíkniefnum á árinu Vanhelgunin ýmist skemmdarverk eða persónuleg árás Sjá meira