Fyrsti starfsdagur Nýsköpunarmiðstöðvar er á Ísafirði í dag 1. ágúst 2007 09:44 MYND/GVA
Nýsköpunarmiðstöð Íslands tekur til starfa í dag, 1. ágúst 2007, við samruna Iðntæknistofnunar og Rannsóknastofnunar byggingariðnaðarins. Fyrsti starfsdagur miðstöðvarinnar verður á Ísafirði sem er sagt táknrænt fyrir áherslur Nýsköpunarmiðstöðvar á atvinnuþróun. „Þess er vænst að sameinuð starfsemi verði lyftistöng á sviði nýsköpunar og tækni," segir í tilkynningu frá Iðnaðarráðuneytinu. Á fyrsta starfsdeginum fyrir vestan verður tilkynnt um nýja starfsemi IMPRU tengda þekkingarsetrinu sem er í þróun á staðnum. Nýtt auðkenni Nýsköpunarmiðstöðvar verður afhjúpað í Edenborgarhúsinu á Ísafirði kl. 13:00 í dag. Í tilkynningu kemur fram að Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra ávarpi gesti en síðan haldi Þorsteinn Ingi Sigfússon, forstjóri Nýsköpunarmiðstöðvarinnar, erindi um starfsemina á næstunni. „Einnig munu aðrir starfsmenn Nýsköpunarmiðstöðvar fjalla um verkefni og árangur þeirra. Þar á meðal eru nokkrar athyglisverðar nýjungar sem ekki hefur verið greint frá áður," eins og segir í tilkynningunni. Þá er sagt að veruleg samlegðaráhrif verði við sameiningu þessara tveggja stofnana á sviði rannsókna og tækni og einnig þjónustu við sprotafyrirtæki og frumkvöðla. „Nýsköpunarmiðstöð Íslands hefur nú möguleika á að samtvinna rannsóknar- og þróunarstarf við starfsemi á sviði viðskipta í ríkari mæli en verið hefur hér á landi."
Mest lesið Fólk búi í hesthúsunum: „Þarna kom að því sem við höfum varað við í mörg ár“ Innlent Kristinn Örn lést eftir hitaslag á Spáni Innlent Segir leigubílstjórastéttina hafa verið „eyðilagða“ Innlent Veita útlendingum greiðari aðgang að heilbrigðiskerfinu en er skylt Innlent Hátt í þrjú hundruð mótmæla útlendingastefnu stjórnvalda Innlent Hitamet aldarinnar slegið Veður Talsverðar skemmdir eftir mikinn eld í Hafnarfirði Innlent Íslendingur lést vegna hitaslags Innlent „Það hefði auðvitað verið betra“ Innlent Vatn flæddi upp úr klósettum og niðurföllum Innlent Fleiri fréttir Furðuísar hjá Kjörís og 70 ára afmæli Heilsustofnunar Hlaupa sex maraþon á jafnmörgum dögum í jakkafötum Eldur á svölum reyndist vera íbúi að grilla Rýnt í fund Trump og Pútíns og jakkafataklæddir raðmaraþonhlauparar „Það hefði auðvitað verið betra“ Kristinn Örn lést eftir hitaslag á Spáni Grunaðir um hópárás með kylfu Funda með foreldrum barna á Múlaborg á morgun Vilja stórefla samgöngur á Vesturlandi Sóttu mann sem féll niður bratta Hátt í þrjú hundruð mótmæla útlendingastefnu stjórnvalda Fólk búi í hesthúsunum: „Þarna kom að því sem við höfum varað við í mörg ár“ Íslendingur lést vegna hitaslags Ókeypis veðmálasíður „ekki eins og áfengislaus bjór“ „Staðan er alvarleg en við vitum ekki hversu alvarleg hún er“ Vatn flæddi upp úr klósettum og niðurföllum Stuð og stemning á fjölskyldudögum í Vogum Fagna sekt vegna veðmálaauglýsinga og tjón eftir vatnsveður Segir leigubílstjórastéttina hafa verið „eyðilagða“ Talsverðar skemmdir eftir mikinn eld í Hafnarfirði Veita útlendingum greiðari aðgang að heilbrigðiskerfinu en er skylt Þrjú hjólhýsi „splundruðust“ á Holtavörðuheiðinni Sekta Símann fyrir að auglýsa erlenda veðmálasíðu „Sprengingarnar eru að skemma húsin okkar“ Sveitastjórn Rangárþings ytra gefur út framkvæmdaleyfi fyrir Hvammsvirkjun Foreldrar verði að halda ró sinni þegar kynferðisbrot eru rædd við börn Vatnstjón á Kjarvalsstöðum og sautján öðrum stöðum Kynferðisbrot á leikskóla og tímamótafundur forseta Líkamsárás á borði lögreglu Hjólhýsi hafa „sprungið“ á Holtavörðuheiðinni Sjá meira